Kinnarfjöllin eftirsótt til ísklifurs.

Kinnarfjöllin hafa sérkennilegt aðdráttarafl og seint þreytast húsvíkingar á að horfa til þeirra yfir flóann. Sama gildir um ferðamenn sem hingað koma, og

Kinnarfjöllin eftirsótt til ísklifurs.
Almennt - - Lestrar 644

Ísklifur í Köldukinn. Ljósmynd Spreki
Ísklifur í Köldukinn. Ljósmynd Spreki

Kinnarfjöllin hafa sérkennilegt aðdráttarafl og seint þreytast húsvíkingar á að horfa til þeirra yfir flóann. Sama gildir um ferðamenn sem hingað koma, og nú eru þau komin vel á blað sem eftirsóttur staður til ísklifurs eftir því sem fram kemur á vef Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga.

 

Í næstsíðasta hefti klifurtímaritsins Gripped fjallar forsíðugreinin um ísklifur á Íslandi og er forsíðumyndin úr Köldukinn. Greinina skrifa Audrey Gariépy, ein fremsta ísklifurkona heims og klifurgarpinum Albert Leichtfried. Audrey fer fögrum orðum um aðstæður í Köldukinn. Henni fannst hún vera að dreyma þegar hún fyrst sá ísvegginn í fjörunni og svaf varla fyrir spenningi. Eftir á sagði hún það hafa verið töfrum líkast að klífa þarna við upp sólarupprás með ferskt sjávarloft í vitum og bjargfuglana allt í kring.  Albert Leichtfried hafði svipaða sögu að segja.

 Í nýjasta tölublaði klifurtímaritsins Alpinist er einnig ítarleg myndskreytt grein eftir Ines Papert, heimsmeistara kvenna í ísklifri, en hún var með í sömu ferð. Í greininni, sem hún titlar Draumfossa, segir að Ines Papert sig alltaf hafa dreymt um hið fullkomna ísklifur. Hún hélt þó að hún myndi þurfa að búa það til sjálf, þar til hún kom til Íslands með Audrey Gariépy.

Hér er krækja á vefútgáfu tímaritsins: www.alpinist.com/doc/ALP22
Hér er frásögnin á heimasíðu Ines Papert: www.ines-papert.de/en.stories.island

 

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744