640.is er netfréttamiðill, sem er ætlað að höfða til húsvíkinga sem og allra annara, á hvaða aldri sem þeir eru og hvar sem þeir eru niðurkomnir í veröldinni. Áherslan verður lögð á að segja fréttir af bæjarlífinu í máli og myndum. Bæjarmörkin eru ekki heilög og því gætu fréttir úr Norðurþingi og nágrenni ratað á vefinn.
Ætlunin er að uppfæra vefinn daglega en nú í upphafi verður það sennilega oftast gert eftir miðjan dag og fram á kvöldið. Eigandi 640.is er Hafþór Hreiðarsson sem jafnframt er ábyrgðarmaður hans. Allar tekjur miðilsins koma af sölu auglýsinga
Aðsent efni er þó á ábyrgð höfunda þess. Opið er fyrir athugasemdir við fréttir og verða þær sem ekki eru birtar undir nafni þurrkaðar út.