Húsvíkingar á ferð um Asíu hitta húsvíking

Eins og margir lesendur 640.is hafa eflasut tekið eftir eru fjögur húsvísk ungmenni á ferðalagi um suð-austur Asíu þessar vikurnar. Þau hafa nú þegar

Húsvíkingar á ferð um Asíu hitta húsvíking
Almennt - - Lestrar 1016

IB Potter á sópnum í Indónesíu.
IB Potter á sópnum í Indónesíu.

Eins og margir lesendur 640.is hafa eflasut tekið eftir eru fjögur húsvísk ungmenni á ferðalagi um suð-austur Asíu þessar vikurnar. Þau hafa nú þegar farið um Malasysíu, Indónesíu, Singapore, Kambódíu og eru nú í Víetnam. En þau eru ekki einu húsvíkingarnir á þessum slóðum því þau hittu einn slíkan í Kambódíu á dögunum. Nánar tiltekið í Sihanoukville þar sem þau hittust á ströndinni.

 

Hann býr reyndar ekki á Húsavík í dag en þarna var á ferðinni Örn Þórðarson, sonur Margrétar Samsonardóttur og Þórðar heitins Sveinssonar. Hann er á ferðalagi um suð-austur Asíu og Kína og með honum í för er kærastan hans hún Elínborg. Þau halda úti vefsíðu þar sem þau segja frá ferðalagi sínu og er hægt að lesa hana hér auk þess sem hægt er að finna hana í tenglasafni 640.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744