Sauđfjárslátrun hafin á Húsavík.

Haustslátrun sauđfjár hófst á Húsavík sl. fimmtudag. Ţó var ekki var slátrađ á föstudag, en frá og međ deginum í dag hefst  sláturtíđin af fullum krafti.

Sauđfjárslátrun hafin á Húsavík.
Almennt - - Lestrar 437

Haustslátrun sauðfjár hófst á Húsavík sl. fimmtudag. Þó var ekki var slátrað á föstudag, en frá og með deginum í dag hefst  sláturtíðin af fullum krafti. "Við slátruðum 800 dilkum fyrsta daginn og það gekk mjög vel. Verkunin hefur aldrei verið betri á fyrsta degi.

Við notuðum þennan fyrsta dag til þess að kenna nýju fólki og samstilla hlutina þannig að þetta gangi sem allra best fyrir sig,” segir Sigmundur Hreiðarsson, vinnslustjóri Norðlenska á Húsavík í samtali við heimasíðu fyrirtækisins.

 

Sigmundur segir að búið sé að fullmanna sláturhúsið. Sem fyrr eru töluvert margir starfsmenn sem koma erlendis frá til þess að taka þátt í haustslátruninni á Húsavík. Bæði eru starfsmenn sem hafa áður verið á Húsavík en einnig er um nýtt fólk að ræða. "Síðastliðið haust voru hér nokkrir reyndir nýsjálenskir slátrarar, sem voru í lykilstörfum við slátrunina, en núna höfum við fengið fleiri breska slátrara til starfa.

 

Þessi vika lítur ágætlega út og er orðin vel bókuð. Við gerum ráð fyrir að slátra um 1100 dilkum á mánudag, þar af um 700 af Austurlandi og sem næst 400 héðan af svæðinu. Síðan mun þetta aukast þegar líður á vikuna og verður væntanlega komið upp í um 1800 dilka á dag í vikulok," segir Sigmundur.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744