Vlsungsstlkur tpuu Hornafiri.

Vlsungstlkurnar fru Hornafjr dag og ttu kappi vi Sindra B rili 1. deildar. Leikurinn fr fram Sindravelli og lauk honum me sigri

Vlsungsstlkur tpuu Hornafiri.
rttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 236 - Athugasemdir ()

Gulla Sigga skorai  Hfn.
Gulla Sigga skorai Hfn.

Völsungstúlkurnar fóru á Hornafjörð í dag og öttu kappi við Sindra í B riðli 1. deildar. Leikurinn fór fram á Sindravelli og lauk honum með sigri heimastúlkna 2-1 og skoraði Gulla Sigga mark Völsunga.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Annars segir http://www.fotbolti.net/ svo frá:

Sindri tók á móti Völsung í B riðli 1.deildar kvenna í dag á Sindravelli á Hornafirði. Fyrir leikinn var Sindri án stiga eftir einn leik sem tapaðist 2-3 á móti Hetti. Völsungur var hinsvegar með 3 stig eftir 9-0 stórsigur gegn Tindastól.

Sindri 2 – 1 Völsungur
1-0 Jóna Benny Kristjánsdóttir (21.)
1-1 Guðlaug Sigríður Magnúsdóttir (80.)
2-1 Heba Björg Þórhallsdóttir (83.)

Jóna Benny Kristjánsdóttir opnaði markareikning Sindrastúlkna með marki á 21.mínútu og kom Sindra í 1-0 og þannig var staðan þegar Miralem Haseta dómari leiksins flautaði til hálfleiks.

Guðlaug Benny Kristjánsdóttir jafnaði metin fyrir Völsung á 80.mínútu í 1-1. Það var síðan Heba Björg Þórhallsdóttir sem skoraði sigurmark Sindra á 83.mínútu og tryggði Sindra öll þrjú stigin í dag.

Næsti leikur í B riðli 1.deildar kvenna er fimmtudaginn 12.júní þar sem Höttur og Völsungur eigast við á Vilhjálmsvelli kl. 20.00 en Höttur er með fullt hús stiga eftir 2 leiki.

 

Meðfylgjandi mynd tók Hilmar Valur Gunnarsson.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr