Völsungar fá markvörđ ađ láni.

Völsungur hefur fengiđ markvörđinn Ágúst Bjarna Garđarsson á láni frá Val ţar til 25.apríl nćstkomandi.  Möguleiki er á ađ sá lánssamningur verđi

Völsungar fá markvörđ ađ láni.
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 265 - Athugasemdir ()

Völsungur hefur fengið markvörðinn Ágúst Bjarna Garðarsson á láni frá Val þar til 25.apríl næstkomandi.  Möguleiki er á að sá lánssamningur verði framlengdur og að Ágúst muni leika með Völsungi í annarri deildinni í sumar.

Ágúst, sem er tvítugur, gekk til liðs við Val árið 2005 en hann kom til liðsins frá FH. Síðastliðið sumar var hann í láni hjá Haukum og lék fimm leiki með liðinu í annarri deildinni.

Völsungur auglýsti á dögunum eftir markverði þar sem Björn Hákon Sveinsson, markvörður liðsins undanfarin ár, er á leið til náms í Danmörku.  Liðið hefur nú fengið Ágúst Bjarna en hann hefur þegar fengið leikheimild og gæti leikið með Völsungi gegn Dalvík/Reyni í Lengjubikarnum á sunnudaginn.


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ