07. nóv
Völsungar á landsliđsćfingum um helginaÍţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 619 - Athugasemdir ( )
Um nýliðna helgi voru landsliðsæfingar U16 karla handknattleik haldnar á höfuðborgarsvæðinu og þar áttu Völsungar fulltrúa. Þar er um að ræða Heimi Pálsson sem æfði og spilaði með Haukum áður en hann flutti með fjölskyldu sinni til Húsavíkur í haust og hafði þá félagaskipti yfir í Völsung.
Þá voru einnig U19 og U17 ára landsliðsæfingar karla í knattspyrnu syðra um helgina. Hafþór Mar Aðalgeirsson var boðaður á U19 æfinguna og mætti þangað galvaskur eins og segir á heimasíðu Völsungs. Ásgeir Sigurgeirs var hinsvegar boðaður á U17 æfinguna en komst ekki vegna meiðsla.
Heimild volsungur.is
Athugasemdir