Umfjöllun: Vindurinn í ađalhlutverki í opnunarleik HúsavíkurvallarÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 500 - Athugasemdir ( )
Það blés duglega á Húsavíkurvelli í dag er Völsungur tók á móti Gróttu í fyrsta leik sumarsins á heimavelli Völsungs. Ágætis mæting var á völlinn en fyrir leikinn voru Völsungsdrengir með fullt hús stiga eftir að hafa sigrað KF og Hamar í fyrstu tveimur umferðunum.
Byrjunarlið Völsungs:
Dejan Pesic, Stefán Jón Sigurgeirsson, Gunnar Sigurður Jósteinsson (f), Marko Blagojevic, Sigvaldi Þór Einarsson, Sigþór Hannesson(Ármann
Örn Gunnlaugsson '76), Bjarki Þór Jónasson(Halldór Fannar Júlíusson '88), Arnþór Hermannsson, Hafþór Mar
Aðalgeirsson, Ásgeir Sigurgeirsson(Aðalsteinn Jóhann Friðriksson '85), Tine Zornik.
Gul spjöld: Stefán Jón Sigurgeirsson, Gunnar S. Jósteinsson, Ármann Örn Gunnlaugsson, Bjarki Þór Jónasson.
Hvasst var á Húsavíkurvelli þegar leikur Völsungs og Gróttu hófst kl.14. Lítið gerðist framan af en Tine Zornik fór upp í
skallaeinvígi og þurfti útaf til aðhlynningar. Hann kom inn á aftur eftir nokkrar mínútur með þessa líka fallegu umbúðir um
höfuðið.
Tine Zornik í baráttunni
Á 19.mínútu fengu Gróttumenn dauðafæri eftir frábæran sprett Sölva Davíðssonar en hann spólaði sig framhjá hverjum
Völsungnum á fætur öðrum og lagði boltann svo til hliðar á samherja sinn við vítateiginn. Sá var í dauðafæri en
lélegt skot og góð viðbrögð Dejan Pesic í marki Völsungs varð til þess að enn var markalaust.
Völsungar áttu góða sókn rétt fyrir leikhlé en þá spila þeir sín á milli þrír-fjórir og Tine Zornik
kemur með fyrirgjöf frá vinstri, menn áttu í erfiðleikum með að ákveða hvert ætti að senda boltann eða út á hvern
ætti að leggja knöttinn. Boltinn endar fyrir utan teig þar sem Bjarki Þór Jónasson fær hann og á skot sem að markvörður
Gróttu varði auðveldlega. Staðan jöfn í hálfleik.
Bjarki Þór Jónasson
Völsungar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og eftir laglegt samspil Hafþórs og Tine fékk Arnþór boltann í teignum en skaut í
varnarmann. Eftir tæpan klukkutíma tekur Dejan langa spyrnu fram, boltinn skoppar yfir varnarmann Gróttu og Hafþór Mar tekur hann á lofti framhjá
fjærstönginni. Gott tækifæri og á góðum degi hefði Haffi slummað þessum í netið.
Á 76.mínútu fengu gestirnir gott tækifæri til þess að komast yfir en eftir mikið klafs inn í teig Völsungs náðu þeir
grænklæddu að hreinsa frá, stál heppnir heimamenn. Undir lok leiks fá heimamenn aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, klukkan veifaði
95.mínútum og tók Arnþór Hermannsson það að sér að taka síðustu spyrnu leiksins. Hann átti gott skot á fjær
en markvörður gestanna varði vel og bjargaði sínum mönnum. Liðin sættust á jafntefli og lokatölur markalaust, 0-0, í fyrsta leik sumarsins
á Húsavíkurvelli.
Heimabakarísmaður leiksins: Dejan Pesic
Stefán Jón: Hefðum getað stolið þessu í lokin
Athugasemdir