Umfjllun: Stelpurnar kvddu sumari me sigrirttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 744 - Athugasemdir ( )
Kvennalið Völsungs hefur lokið keppni þetta sumarið og enduðu stelpurnar mótið á sigurleik gegn HK/Víking í gær. Stelpurnar unnu
leikinn, 2-1, með mörkum frá þeim Helgu Björk Heiðarsdóttir og Huldu Ósk Jónsdóttir. Það gerðist lítið framan af en
það fór þó að lifna yfir þessu í síðari hálfleiknum og kláruðu þær grænklæddu sumarið með
sæmd.
Byrjunarlið Völsungs: Anna Jónína Valgeirsdóttir, Berglind Ósk Kristjánsdóttir, Jóney Ósk
Sigurjónsdóttir (Elma Rún Þráinsdóttir '89), Jana Björg Róbertsdóttir, Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir (Hulda
Ósk Jónsdóttir '69), Anna Halldóra Ágústsdóttir, Helga Björk Heiðarsdóttir, Ruth Ragnarsdóttir (Ragna
Baldvinsdóttir '89), Ásrún Ósk Einarsdóttir (f), Dagbjört Ingvarsdóttir, Heiðdís Hafþórsdóttir (Guðný
Björg Barkardóttir '59).
Leikurinn fór mjög rólega af stað og í raun fátt markvert sem gerðist í fyrri hálfleiknum. Litlaust miðjuhnoð í suddarigningu.
Það var ekki fyrr en eftir um tuttugu mínútur sem að heimastúlkur bitu frá sér en þá átti Ruth Ragnarsdóttir skot sem var
vel varið.
Á 35.mínútu var Anna Jónína vel á varði í marki Völsungs og bauð upp á klassa markvörslu. Hún fékk að
launum duglegt flaut frá Húsvískum áhorfendum sem margir höfðu flúið inn í bil og sett miðstöðina á fullt blast.
Um fimm mínútum síðar skoruðu gestirnir mark en það var réttilega dæmt af vegna rangstöðu. Staðan var jöfn, 0-0, í
hálfleik og fátt sem benti til þess að mörk væru að fara koma í þetta miðað við fyrri hálfleikinn.
Þær grænu mættu þó mun tilbúnari til leiks út í síðari hálfleikinn og Helga Björk kom boltanum í netið
fljótlega eftir að seinni hálfleikur hófst en Helga rangstæð og markið ekki gilt.
Kjúllarnir Guðný Björg og Hulda Ósk komu inn af bekknum en þær lífguðu verulega upp á leikinn og voru frábærar. Á 80
mínútu áttu heimastúlkur að fá víti er boltinn fór augljóslega í hendina á varnarmanni HK/Víkings en dómari
leiksins í vænum svefni og ekki heyrðist í flautunni.
Markið datt svo loksins á 83.mínútu en þá skoraði Helga Björk Heiðarsdóttir eftir sendingu frá Ruth og ljóst að stelpurnar
ætluðu að klára sumarið á sigri. Hulda Ósk bætti svo við öðru markinu þremur mínútum síðar eftir flotta takta
vippaði hún snyrtilega yfir markvörðinn og setti punktinn á sumarið.
Gestinir náðu að lauma marki undir lokin en komust ekki lengra og, 2-1, sigur Völsungs staðreynd. Frábær endir á sumrinu hjá stelpunum en
þær sigruðu fjóra síðustu leikina sína og var vel við hæfi klára dæmið með sigri á heimavelli gegn sterku liði
HK/Víkings.
NIVEA/640.is stúlka leiksins: Anna Jónína Valgeirsdóttir
Dagbjört Ingvarsdóttir átti flottan leik
Jósef "ELVIS" Ólason
mætti á völlinn um helgina.
Tengdar greinar:
Heiðdís:
Var kominn tími til að keyra þetta aftur í gang
Ásrún Ósk: Mikilvægt að enda sumarið á sigri
Athugasemdir