Stelpurnar lágu fyrir Hetti í lengjubikarnum

Völsungsstelpurnar léku sinn annan leik í Lengjubikarnum í dag ţegar ţćr mćttu Hetti frá Egilsstöđum í Boganum á Akureyri. Leiknum lauk međ 2-1  sigri

Stelpurnar lágu fyrir Hetti í lengjubikarnum
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 344 - Athugasemdir ()

Andri Hnikarr Jónsson.
Andri Hnikarr Jónsson.

Völsungsstelpurnar léku sinn annan leik í Lengjubikarnum í dag þegar þær mættu Hetti frá Egilsstöðum í Boganum á Akureyri. Leiknum lauk með 2-1  sigri Hattar og skoraðu Hattarstúlkur sigurmarkið í blálokin. Hafrún Olgeirsdóttir skoraði mark Völsunga.

 

Völsungur er því með þrjú stig eftir tvo leiki en næsti leikur er sunnudaginn 18. apríl nk. en þá mæta þær Tindastól/Neista í Boganum. Þjálfari Völsungs er Andri Hnikarr Jónsson sem tók við liðinu í vetur af Jóhanni Kr. Gunnarssyni.

 

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ