Milan Pesic: Mjög mikilvćgt ađ ná ađ skora straxÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 577 - Athugasemdir ( )
,,Þetta var erfitt því íslendingar þeir hlaupa mikið og fyrri hálfleikur var ekki nógu góður hjá mér en í
seinni hálfleik fannst mér ég spila betur. Ég er fullviss um að ég mun spila ennþá betur í næsta leik en ég er fyrst og fremst
ánægður með að ná að skora í mínum fyrsta leik og að liðið vann," sagði Milan Pesic, nýr leikmaður Völsungs,
eftir sinn fyrsta leik með félaginu en það tók hann aðeins þrettán mínútur að skora fyrir liðið.
,,Fyrir framherja er það mjög mikilvægt að ná að skora strax, ég er kominn hingað til að skora mörk því það er
hlutverk sóknarmanns. Einn leikur, eitt mark og ég er mjög ánægður og vona að þetta sé það sem koma skal. Þetta snýst um
að halda áfram að ná góðum úrslitum og fara upp í fyrstu deild," sagði Milan Pesic yfirvegaður en ákveðinn.
,,Það er mikilvægt fyrir okkur alla að slaka á og ná okkur niður því það er erfiður leikur á miðvikudag. Við
þurfum að fá fullan styrk fyrir þann leik og ef við ætlum okkur öll stigin þar þurfum að spila aðeins betur en í þessum leik,
svo vonandi mætum við klárir og komum heim með öll stigin," sagði Milan um næsta leik sem er gegn Gróttu á miðvikudag.
Milan Pesic skorar hér sitt fyrsta mark í sínum fyrsta leik um helgina
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Mærusigur í steikjandi hita á Húsavíkurvelli
Marko Blagojevic: Hér á Húsavík líður mér eins og heima
Bergmann bræður í viðtali eftir mærusigurinn
Athugasemdir