Milan Pesic: Mjög mikilvćgt ađ ná ađ skora strax

,,Ţetta var erfitt ţví íslendingar ţeir hlaupa mikiđ og fyrri hálfleikur var ekki nógu góđur hjá mér en í seinni hálfleik fannst mér ég spila betur. Ég er

Milan Pesic: Mjög mikilvćgt ađ ná ađ skora strax
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 577 - Athugasemdir ()

Milan Pesic
Milan Pesic

,,Þetta var erfitt því íslendingar þeir hlaupa mikið og fyrri hálfleikur var ekki nógu góður hjá mér en í seinni hálfleik fannst mér ég spila betur. Ég er fullviss um að ég mun spila ennþá betur í næsta leik en ég er fyrst og fremst ánægður með að ná að skora í mínum fyrsta leik og að liðið vann," sagði Milan Pesic, nýr leikmaður Völsungs, eftir sinn fyrsta leik með félaginu en það tók hann aðeins þrettán mínútur að skora fyrir liðið.

,,Fyrir framherja er það mjög mikilvægt að ná að skora strax, ég er kominn hingað til að skora mörk því það er hlutverk sóknarmanns. Einn leikur, eitt mark og ég er mjög ánægður og vona að þetta sé það sem koma skal. Þetta snýst um að halda áfram að ná góðum úrslitum og fara upp í fyrstu deild," sagði Milan Pesic yfirvegaður en ákveðinn.

,,Það er mikilvægt fyrir okkur alla að slaka á og ná okkur niður því það er erfiður leikur á miðvikudag. Við þurfum að fá fullan styrk fyrir þann leik og ef við ætlum okkur öll stigin þar þurfum að spila aðeins betur en í þessum leik, svo vonandi mætum við klárir og komum heim með öll stigin," sagði Milan um næsta leik sem er gegn Gróttu á miðvikudag.

Milan
Milan Pesic skorar hér sitt fyrsta mark í sínum fyrsta leik um helgina

Tengdar greinar:
Umfjöllun: Mærusigur í steikjandi hita á Húsavíkurvelli

Marko Blagojevic: Hér á Húsavík líður mér eins og heima
Bergmann bræður í viðtali eftir mærusigurinn


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ