Jói Páls: Ţađ gekk allt upp í seinni hálfleikÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 519 - Athugasemdir ( )
,,Þetta var hrikalega sætt og það gekk allt upp í seinni hálfleik," sagði Jóhann Rúnar Pálsson, þjálfari kvennaliðs
Völsungs, eftir mikilvægan sigur suður með sjó en Völsungsstúlkur sigruðu Keflavík, 1-3, í kvöld eftir frábæran
síðari hálfleik.
,,Fyrri hálfleikur var þungur og lítið gerðist en vindurinn og blautur völlur gerði okkur líka erfitt fyrir. Keflavík skora svo þarna
rétt fyrir leikhlé nánast bara upp úr engu," sagði Jói.
,,En stelpurnar ákváðu að taka sig á og gera þetta saman í seinni hálfleik sem skilaði virkilega góðum og mikilvægum stigum. Ungu
stelpurnar skiluðu sínu mjög vel og leikmennirnir sem að komu inn af bekknum voru sterkar og flottar. Þetta var mikilvægt fyrir okkur og algjörlega þess
virði að keyra heim núna til baka á Húsavík. Þetta gekk upp í kvöld," sagði Jói Páls í leikslok
ánægður.
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Frábær seinni hálfleikur tryggði langþráðan sigur
Athugasemdir