Jói Páls: Ţađ gekk allt upp í seinni hálfleik

,,Ţetta var hrikalega sćtt og ţađ gekk allt upp í seinni hálfleik," sagđi Jóhann Rúnar Pálsson, ţjálfari kvennaliđs Völsungs, eftir mikilvćgan sigur suđur

Jói Páls: Ţađ gekk allt upp í seinni hálfleik
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 519 - Athugasemdir ()

Jóhann Rúnar Pálsson
Jóhann Rúnar Pálsson

,,Þetta var hrikalega sætt og það gekk allt upp í seinni hálfleik," sagði Jóhann Rúnar Pálsson, þjálfari kvennaliðs Völsungs, eftir mikilvægan sigur suður með sjó en Völsungsstúlkur sigruðu Keflavík, 1-3, í kvöld eftir frábæran síðari hálfleik.


,,Fyrri hálfleikur var þungur og lítið gerðist en vindurinn og blautur völlur gerði okkur líka erfitt fyrir. Keflavík skora svo þarna rétt fyrir leikhlé nánast bara upp úr engu," sagði Jói.

,,En stelpurnar ákváðu að taka sig á og gera þetta saman í seinni hálfleik sem skilaði virkilega góðum og mikilvægum stigum. Ungu stelpurnar skiluðu sínu mjög vel og leikmennirnir sem að komu inn af bekknum voru sterkar og flottar. Þetta var mikilvægt fyrir okkur og algjörlega þess virði að keyra heim núna til baka á Húsavík. Þetta gekk upp í kvöld," sagði Jói Páls í leikslok ánægður.

Tengdar greinar:
Umfjöllun: Frábær seinni hálfleikur tryggði langþráðan sigur


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ