Heiđdís: Var kominn tími til ađ keyra ţetta aftur í gang

„Viđ svöruđum svo sannarlega fyrir okkur eftir fyrri leikinn enda var ţađ ákveđiđ inn í klefa eftir tapleikinn í Kópavogi fyrr í sumar ađ viđ myndum svara

Heiđdís: Var kominn tími til ađ keyra ţetta aftur í gang
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 782 - Athugasemdir ()

Heiđdís Hafţórsdóttir
Heiđdís Hafţórsdóttir

„Við svöruðum svo sannarlega fyrir okkur eftir fyrri leikinn enda var það ákveðið inn í klefa eftir tapleikinn í Kópavogi fyrr í sumar að við myndum svara fyrir okkur á heimvelli," sagði Heiðdís Hafþórsdóttir eftir sigurinn gegn HK/Víking í gær en þetta var lokaleikur kvennaliðsins í sumar.

„Mér fannst leikurinn ágætur hjá okkur, það komu lélegar mínútur af og til en við vissum allan tímann að við værum að fara vinna þennan leik. Skoruðum tvö flott mörk, unnum leikinn og fengum þar af leiðandi þrjú stig. Mjög sáttar og mjög mikilvægt að klára sumarið á sigri eftir frábæran lokasprett á tímabilinu," segir Heiðdís sem vill meina að ákveðin hugarfarsbreyting hafa orðið hjá liðinu fyrir seinni hlutann.

„Ég held að það hafi bara verið hugarfarið hjá okkur stelpunum sem breyttist. Eftir of marga tapleiki var kominn tími til að keyra þetta aftur í gang, sýna hvað við getum og vinna það sem eftir var sem og við gerðum. Auðvitað er mjög svekkjandi að vera ekki á leið í úrslit en svona er boltinn, það kemur sumar eftir þetta sumar," sagði Heiðdís en fer hún sátt frá sumrinu?

„Fyrri hluta sumars gekk þetta svona upp og ofan og þegar við sáum það að við yrðum ekki í toppbaráttunni þá settum við okkur þau markmið að ná þriðja eða fjórða sætinu og það er mjög jákvætt að hafa náð því," segir Heiðdís en hvað finnst henni standa upp úr eftir sumarið?

„Fyrst og fremst sigurleikirnir og félagsskapurinn. Síðan má nefna það að ég spilaði einhverjar mínútur í öllum stöðum á vellinum nema í markinu sem var mjög skemmtilegt og er eftirminnilegt út af fyrir sig," sagði Heiðdís Hafþórsdóttir að lokum.

hdis

Tengdar greinar:
Ásrún Ósk: Mikilvægt að enda sumarið á sigri

Umfjöllun: Stelpurnar kvöddu sumarið með sigri


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ