Heiđdís: Var kominn tími til ađ keyra ţetta aftur í gangÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 782 - Athugasemdir ( )
„Við svöruðum svo sannarlega fyrir okkur eftir fyrri leikinn enda var það ákveðið inn í klefa eftir tapleikinn í Kópavogi fyrr
í sumar að við myndum svara fyrir okkur á heimvelli," sagði Heiðdís Hafþórsdóttir eftir sigurinn gegn HK/Víking í gær en
þetta var lokaleikur kvennaliðsins í sumar.
„Mér fannst leikurinn ágætur hjá okkur, það komu lélegar mínútur af og til en við vissum allan tímann að við
værum að fara vinna þennan leik. Skoruðum tvö flott mörk, unnum leikinn og fengum þar af leiðandi þrjú stig. Mjög sáttar og mjög
mikilvægt að klára sumarið á sigri eftir frábæran lokasprett á tímabilinu," segir Heiðdís sem vill meina að
ákveðin hugarfarsbreyting hafa orðið hjá liðinu fyrir seinni hlutann.
„Ég held að það hafi bara verið hugarfarið hjá okkur stelpunum sem breyttist. Eftir of marga tapleiki var kominn tími til að keyra þetta
aftur í gang, sýna hvað við getum og vinna það sem eftir var sem og við gerðum. Auðvitað er mjög svekkjandi að vera ekki á leið
í úrslit en svona er boltinn, það kemur sumar eftir þetta sumar," sagði Heiðdís en fer hún sátt frá sumrinu?
„Fyrri hluta sumars gekk þetta svona upp og ofan og þegar við sáum það að við yrðum ekki í toppbaráttunni þá settum
við okkur þau markmið að ná þriðja eða fjórða sætinu og það er mjög jákvætt að hafa náð
því," segir Heiðdís en hvað finnst henni standa upp úr eftir sumarið?
„Fyrst og fremst sigurleikirnir og félagsskapurinn. Síðan má nefna það að ég spilaði einhverjar mínútur í öllum
stöðum á vellinum nema í markinu sem var mjög skemmtilegt og er eftirminnilegt út af fyrir sig," sagði Heiðdís Hafþórsdóttir
að lokum.
Tengdar greinar:
Ásrún Ósk: Mikilvægt að enda sumarið á sigri
Umfjöllun: Stelpurnar kvöddu sumarið með sigri
Athugasemdir