Fjórir efnilegir strákar lánađir til Ţórs - Jónas til Magna Grenivík

Völsungur og Ţór á Akureyri náđu samkomulagi um ţađ ađ fjórir efnilegir strákar úr Völsungi fćru á lánssamningi til Akureyrarliđsins en ţeir Halldór

Fjórir efnilegir strákar lánađir til Ţórs - Jónas til Magna Grenivík
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 844 - Athugasemdir ()

Halldór, Eyţór, Hilmar og Bjarki Freyr
Halldór, Eyţór, Hilmar og Bjarki Freyr

Völsungur og Þór á Akureyri náðu samkomulagi um það að fjórir efnilegir strákar úr Völsungi færu á lánssamningi til Akureyrarliðsins en þeir Halldór Kárason, Eyþór Traustason, Hilmar Másson og Bjarki Freyr Lúðvíksson munu allir spila með 2.flokki Þórs í sumar.

Vissulega gott tækifæri fyrir þá til að ná sér í reynslu og bæta sig sem leikmenn en líkt og menn vita þá er enginn 2.flokkur starfandi hjá Völsungi í sumar svo þetta því góð lausn fyrir þessa framtíðarleikmenn félagsins.

Jónas Halldór Friðriksson var sömleiðis lánaður en hann fer á lánssamningi til síns gamla félags Magna Grenivík. Jónas hefur verið meiddur í vetur og ætlar sér að komast í stand og leikform með þeim Grenvíkingum. Hann spilaði með liðinu tvö tímabil, 2008 og 2009 og á að baki 37 leiki fyrir félagið þar sem hann skoraði fjögur mörk.

Jonas Halldor

Jónas Halldór í Magnabúningnum 2008.

Við óskum okkar mönnum alls hins besta á nýjum vígstöðum og vonum að þeir verði sér og félaginu okkar til sóma því þeir eru aðeins á láni og mikilvægt fyrir menn að aldrei að gleyma - Eitt sinn Völsungur, ávallt Völsungur


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ