Einn sigur og eitt tap hjá stelpunum

Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hófu keppni í íslandsmótinu um nýliđna helgi međ tveim leikjum. Sá fyrri var á Akranesi gegn ÍA og sá síđari gegn ÍBV

Einn sigur og eitt tap hjá stelpunum
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 260 - Athugasemdir ()

Stelpurnar brugđu sér á landsleik. Fotbolti.net
Stelpurnar brugđu sér á landsleik. Fotbolti.net

Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu hófu keppni í íslandsmótinu um nýliðna helgi með tveim leikjum. Sá fyrri var á Akranesi gegn ÍA og sá síðari gegn ÍBV út í eyjum. Völsungur vann ÍA en tapaði gegn ÍBV.

 

640.is hafði samband við Jóhann Kr. Gunnarsson þjálfara Völsungs og spurði hann út í leikina.

 

„Leikurinn við ÍA var bara mjög góður þrátt fyrir að mikil spenna væri í mannskapnum þar sem þetta var fyrsti leikurinn okkar í mótinu. Það var þó augljóst strax í leiknum að við ætluðum okkur að hirða öll stigin. Reyndar var leikurinn frekar jafn í byrjun og lítill tími gafst til að spila og byggja upp sóknir. Eftir tvö góð mörk og rautt spjald á þeirra besta leikmann í fyrri hálfleik var sigurinn í raun ekki í neinni hættu. Í seinni hálfleik börðust ÍA-stelpur meira og voru meira með boltann en í fyrri hálfleik. Þrátt fyrir þetta bættum við tveim glæsilegum mörkum við og glæsileg byrjun í mótinu staðreynd. Mörkin gerðu Hafrún tvö og þær Harpa og Berglind eitt hvor.“ Sagði Jói og greinilega ánægður með leikinn á Skaganum.

„Um leikinn við ÍBV er lítið annað að segja en það að Völsungsstelpur voru bara ekki í neinu standi til að taka tvo leiki í sömu ferð suður. Þreyta, slen og leti einkenndu leikinn og því fór sem fór. Við hreinlega mættum ekki til leiks í eyjum og uppskárum þrjú mörk í andlitið að launum í fyrri hálfleik. Það er greinilegt að þetta þarf að skoða vel því við þurfum að fara svona ferð aftur þ.e. að taka tvo leiki í ferð. Það er engin afsökun að hafa hlaupið mikið og tekið vel á því í fyrri leiknum. Það sem er grátlegast við þetta tap er að við vorum með boltann lungann úr leiknum! við fengum mikið meiri tíma með boltann í þessum leik heldur en á móti ÍA en fram á við vorum við grútmáttlausar! Skotin okkar á markið (sem voru í kringum fimmtán) litu út fyrir að vera sendingar aftur á markmann. Hlaup í svæði, græðgin fram á við og viljinn til að vinna voru bara ekki til staðar og því fór þetta svona ömurlega. Það er eins gott að stelpurnar haldi rétt á spilum í framhaldinu og fari að taka þetta alvarlega ef einhver stöðugleiki á að nást í sumar. Það er ekki hægt að taka bara einn og einn góðan leik inná milli og lifa á honum fram yfir nokkra leiki áður en maður hysjar upp um sig aftur og fer að gera eitthvað af viti“. Sagði Jói og greinilega allt annað en sáttur við leikinn í eyjum.

Hann sagði að aðstæður í báðum leikjunum hafi verið frábærar, góðir vellir og gott veður. „Það var vel tekið á móti okkur og dómarar voru góðir. Ferðin var þræl vel skipulögð af stjórninni okkar, við fórum m.a. á landsleik Íslands og Hollands  á laugardeginum. Ferðin kostaði helling af peningum sem lítið er til af. Nú verðum við sem stöndum á vellinum að læra að meta svona hluti“. Sagði Jói Kr. að lokum.

 

Þess má geta að þriðji flokkur kvenna var í för með meistaraflokki og lék einnig tvo leiki sem töpuðust báðir.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ