Dragan: Kláruđum ţetta sannfćrandi

„Ég er mjög ánćgđur og strákarnir lögđu sig alla fram í dag sem skilađi mikilvćgum sigri," sagđi Dragan Stojanovic, ţjálfari Völsungs, eftir 2-0 sigur á

Dragan: Kláruđum ţetta sannfćrandi
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 774 - Athugasemdir ()

Dragan
Dragan

„Ég er mjög ánægður og strákarnir lögðu sig alla fram í dag sem skilaði mikilvægum sigri," sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Völsungs, brosandi eftir 2-0 sigur á Húsavíkurvelli gegn KV.

„Við vorum búnir að æfa vel alla vikuna, undirbúa okkur mikið og mikil vinna sem við lögðum í þetta verkefni. Ég get ekki verið sammála því sem fótbolti.net skrifar eftir leikinn að við höfum stolið sigrinum, það er ekki rétt. 2-0 sigur er ekki stolin sigur, við áttum seinni hálfleikinn og kláruðum þetta sannfærandi,"
sagði þjálfarinn sem hrósaði dómurum leiksins eftir leikinn.


„Ég vill hrósa dómurunum fyrir frammistöðu sína í dag, þetta tríó stóð sig virkilega vel og þeir eiga hrós skilið fyrir vinnu sína í þessum leik," sagði Dragan en dómarar leiksins voru þeir Geir Eggertsson, Viðar Helgason og Viðar Valdimarsson.

„Nú höldum við áfram og tökum einn leik í einu. Það eru fjórir leikir eftir og við stefnum áfram í átt að okkar markmiðum sem eru skýr. Það verður gaman í kvöld og við njótum þess að vera á toppnum en á morgun ætlum við að gleyma strax þessum og byrja að hugsa um næsta leik, það er nóg eftir," sagði Dragan einbeittur.

Dragan og villi
                           Dragan Stojanovic og Vilhjálmur Sigmundsson

Tengdar greinar:
Umfjöllun: Kóngarnir komnir heim
Hafþór Mar: Við erum bestir

Hrannar: Ég ætla ekki að vera kokký


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ