Dragan: Kláruđum ţetta sannfćrandiÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 774 - Athugasemdir ( )
„Ég er mjög ánægður og strákarnir lögðu sig alla fram í dag sem skilaði mikilvægum sigri," sagði Dragan Stojanovic,
þjálfari Völsungs, brosandi eftir 2-0 sigur á Húsavíkurvelli gegn KV.
„Við vorum búnir að æfa vel alla vikuna, undirbúa okkur mikið og mikil vinna sem við lögðum í þetta verkefni. Ég get ekki
verið sammála því sem fótbolti.net skrifar eftir leikinn að við höfum stolið sigrinum, það er ekki rétt. 2-0 sigur er ekki stolin
sigur, við áttum seinni hálfleikinn og kláruðum þetta sannfærandi," sagði þjálfarinn sem hrósaði dómurum leiksins
eftir leikinn.
„Ég vill hrósa dómurunum fyrir frammistöðu sína í dag, þetta tríó stóð sig virkilega vel og þeir eiga
hrós skilið fyrir vinnu sína í þessum leik," sagði Dragan en dómarar leiksins voru þeir Geir Eggertsson, Viðar Helgason og Viðar
Valdimarsson.
„Nú höldum við áfram og tökum einn leik í einu. Það eru fjórir leikir eftir og við stefnum áfram í átt að
okkar markmiðum sem eru skýr. Það verður gaman í kvöld og við njótum þess að vera á toppnum en á morgun ætlum við
að gleyma strax þessum og byrja að hugsa um næsta leik, það er nóg eftir," sagði Dragan einbeittur.
Dragan Stojanovic og Vilhjálmur
Sigmundsson
Tengdar greinar:
Umfjöllun: Kóngarnir komnir
heim
Hafþór Mar: Við erum bestir
Hrannar: Ég ætla ekki að vera kokký
Athugasemdir