Dejan Pesic: egar a g f skkulaiskinn er a fyrir allt lii

Fyrir leikinn sagi Dragan okkur allt sem vi urftum a vita um etta li. A eir vru sterkir og me fnt li en eir voru betri en vi fyrri

Dejan Pesic: egar a g f skkulaiskinn er a fyrir allt lii
rttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 490 - Athugasemdir ()

Dejan Pesic Heimabakars maur leiksins
Dejan Pesic Heimabakars maur leiksins

„Fyrir leikinn sagði Dragan okkur allt sem við þurftum að vita um þetta lið. Að þeir væru sterkir og með fínt lið en þeir voru betri en við í fyrri hálfleik og við vorum mun betri í þeim seinni. Við fengum víti og góðan séns í lokin til að klára þetta en við tökum stigið og höldum áfram. Núna er þessi leikur búinn og við verðum að horfa fram á við. Allir leikir eru mjög mikilvægir og við tökum þetta skref fyrir skref," sagði Dejan Pesic, Heimabakarís maður leiksins, eftir markalaust jafntefli Völsungs og Dalvík/R. sem fram fór á Húsavíkurvelli í gær.

3

„Ég er mjög ánægður að við töpuðum ekki og það er jákvætt. Ég vona að við getum við haldið áfram að þróa okkar leik út tímabilið og verið betri með hverjum leik sem við spilum, mætt yfirvegaðir, stresslausir og spilað enn betur," sagði Dejan en hann var valinn Heimabakarís maður leiksins og segir markvörðurinn viðurkenninguna ekki skipta sig miklu máli þó svo að hann sé farinn að raða súkkulaðiskóm út um alla íbúð.

2

„Fyrir mig skiptir þetta ekki miklu máli. Það sem skiptir mig máli er að liðið spili vel og að við fáum þrjú stig. Ég er bara einn leikmaður og án hinna tíu leikmannana þá gæti ég ekki gert neitt. Við erum lið og þegar að ég fæ súkkulaðiskóinn er það fyrir allt liðið, alla leikmenn því við gerum þetta saman," sagði Dejan Pesic í leikslok.

1

Tengdar greinar:
Umfjöllun: Stál í stál á Húsavíkurvelli

Halldór Fannar: Þetta er klárlega lið sem að við ætlum að vinna seinna í sumar


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr