18. apr
Björn Hákon ver mark Völsunga í sumar.Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 213 - Athugasemdir ( )
Markvörðurinn Björn
Hákon Sveinsson mun leika í marki Völsungs í sumar og þá mun hann einnig verða aðstoðarþjálfari liðsins. Björn mun
aðstoða Jónas Hallgrímsson þjálfara liðsins með æfingar en einnig er horft til þess að Björn taki að sér
markmannsþjálfun.
Björn fór síðastliðið haust í nám til Danmerkur og stenfdi að því að vera erlendis í sumar en það hefur breyst og því leikur hann með Völsungi í sumar. Liðið var búið að auglýsa eftir markverði þar sem ekki var búist við að Björn Hákon yrði með en markvörðurinn Ágúst Bjarni Garðarsson hefur meðal annars leikið með Völsungi í Lengjubikarnum þar sem hann hefur verið í láni frá Val.
Athugasemdir