Arnţór: Ţetta var glórulaust

„Ţetta var glórulaust hjá dómaranum, ekki mér. Varnarmađur skallar boltann til baka og ég er á undan markmanninum, pota boltanum og hann ver. Dómarinn

Arnţór: Ţetta var glórulaust
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 558 - Athugasemdir ()

Arnţór Hermannsson
Arnţór Hermannsson

„Þetta var glórulaust hjá dómaranum, ekki mér. Varnarmaður skallar boltann til baka og ég er á undan markmanninum, pota boltanum og hann ver. Dómarinn dæmir og gefur mér rautt spjald fyrir. Engan veginn rautt en vel varið hjá markmanninum," sagði Arnþór Hermannsson sem fékk að líta rauða spjaldið á 67.mínútu leiksins er Völsungur sigraði Fjarðabyggð, 0-1, á Eskifjarðarvelli í gærkvöld.

„Þetta var hryllilega sætt að horfa á þá klára þetta einum færri, þrjú stig og við erum komnir í annað sætið," bætti Arnþór brosmildur við en Gunni Siggi skoraði sigurmarkið með skalla í uppbótartíma eftir aukaspyrnu frá Hrannari.

„Við ætluðum að liggja aðeins og beita skyndisóknum, það virkaði vel og þeir voru ekki að skapa sér nein hættuleg færi. Svo þegar ég er rekinn útaf bættu strákarnir bara meira í og voru hættulegir. Markið lá bara í loftinu þarna undir lokin og það kom svo loksins, hrikalega sætt," sagði Arnþór en varð hann var við stuðningsmenn Völsungs sem að létu vel í sér heyra úr brekkunni ?

„Já þeir voru góðir að kalla á dómarann, maður heyrði vel í þeim og þeir áttu alveg stúkuna. Þetta verður skemmtileg ferð heim og við getum sofnað vel í kvöld komnir í annað sætið," sagði Arnþór Hermannsson í leikslok.

Arnþór

Tengdar greinar:
Umfjöllun: Kletturinn hetja Völsungs á Eskifirði
Dragan: Þetta var snilld, algjör snilld

Gunni Siggi: Mjög góð tilfinning að sjá boltann í netinu


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ