4 flokkur kvenna sigrai Htt Egilsstum.

Fjri flokkur kvenna spilai gr vi Htt Egilsstum og hfu betur, 4-3. Heids Hafrsdttir skorai fyrsta mark Vlsunga og Jney

4 flokkur kvenna sigrai Htt Egilsstum.
rttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 165 - Athugasemdir ()

Sonja Sif skorai gegn Hetti.
Sonja Sif skorai gegn Hetti.

Fjórði flokkur kvenna spilaði í gær við Hött á Egilsstöðum og höfðu betur, 4-3. Heiðdís Hafþórsdóttir skoraði fyrsta mark Völsunga og Jóney Ósk Sigurjónsdóttir kom þeim í 2-0 áður en Hattarstúlkur minnkuðu muninn. Jóney Ósk skoraði sitt annað mark í leiknum og þriðja mark Völsunga en heimamenn náðu að minnka muninn og jafna síðan leikinn. Það  var svo í blálok leiksins sem Sonja Sif Þórólfsdóttir skoraði sigurmark Völsunga við mikinn fögnuð leikmanna Völsungs.

 

Að leik loknum var síðan haldið af stað áleiðis á Hornafjörð þar sem spilað verður gegn Sindra í dag.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr