Völsungur Reynir 1-1Íţróttir - - Lestrar 179 - Athugasemdir ( )
Á Húsavíkurvelli áttust við í dag Völsungur og Reynir Sandgerði. Kalt
var í veðri og ágætis vindur en það virtist ekkert trufla leikinn neitt.
Völsungar byrjuðu af krafti og á 6.mínútu átti Ármann Örn Gunnlaugsson erfitt skot sem Helgi Helgason markvörður Reynismann náði
að slá í horn. Ekki leið á löngu þar til næsta færi leit dagsins ljós en Bjarki Baldvinsson slapp einn í gegn á 9.mín
og Helgi kom langt útúr markinu, Bjarki reyndi að vippa yfir hann en boltinn náði aldrei almennilegri hæð og Helgi greip.
Til tíðinda barst samt á 15.mín þegar að Bjarki slapp aftur í gegn, kom boltanum framhjá Helga sem tók Bjarka niður. Réttilega
dæmt vítaspyrna af annars ungum og mjög fínum dómara leiksins, Sigurhirti Snorrasyni. Bjarki fór sjálfur á punktinn og setti Helga í
vitlaust horn. 1-0 fyrir Völsunga.
Völsungur var þó varla mættur í Paradís þegar að þeim var refsað. Jóhann Magni Jóhannson komst þá inn fyrir,
náði boltanum og tókst að koma boltanum framhjá varnarmönnunum sem eltu hann. Ágætis skot frá vítateig sem endaði ofarlega í
markhorninu. 1-1 og allt í járnum bara!
Á 30.mín splundraðist vörn Völsunga og fyrirgjöf frá hægri kantinum rataði inn á teig þar sem Novak Popovic stóð einn og
aleinn en laflaust skot hans rataði beint á Björn Hákon markvörð Völsunga.
Davíð Þórólfsson fór meiddur út af hjá Völsungum og Sveinbjörn Már Steingrímsson kom í hans stað. Rétt
undir lok fyrri hálfleiks komst miðvörðurinn Aron Bjarki í frábært færi fyrir Völsunga eftir hornspyrnu en skot hans fór yfir markið. 1-1
í hálfleik.
Ekki voru liðnar nema 30 sekúndur af seinni hálfleik þegar að mikill darraðadans skapaðist í teig Reynismanna og ég held að Helgi
markvörður hafi náð að slæma hendinni þrisvar í knöttinn og bjarga áður en hann loks náði haldi á honum. Strax í
næstu sókn Völsunga sem var frábærlega spiluð og hröð átti Bjarki Baldvinsson skot vel framhjá Reynismarkinu.
Því næst kom það tvisvar fyrir með stuttu millibili að Bjarki tók hornspyrnu frá hægri fyrir Völsunga og Ármann Örn
mætti galvaskur á nær og náði fínum skotum, annað rataði yfir en hitt fór í hliðarnetið. Á 70.mínútu tók
Bjarki enn eina hornspyrnuna sem rataði þráðbeint á kollinn á Aroni Bjarka sem var dauðafrír en slæmur skalli hans stefndi vel framhjá
áður en hreinsað var.
Fimm mínútum síðar fengu Völsungar skyndisókn þar sem varnarlína Reynismanna ætlaði öll í Bjarka Baldvinsson á
hægri kantinum. Tveir Völsungar komu fríir með upp en léleg fyrirgjöf varð til þess að færið rann út í sandinn. Vel
heyrðist í Helga markmanni þá sem var allt annað en parsáttur við þessa varnarvinnu.
Reynismenn fóru að færa sig framar og vinna fleiri bolta á miðjunni en svo virtist sem að allar þeirra sóknir hafi endað með því
að tapa boltann eða að fyrirgjöf þeirra yrði gripin af Birni. Þó fékk Magnús Ólafsson fínt skotfæri inn á teig en
hitti boltann illa og sendi hann vel framhjá. Á 89.mínútu fengu Reynir skyndisókn sem endaði með að Sigurður Donys fékk fyrirgjöf og
stóð einn fyrir opnu marki og hamraði boltann lengst yfir markið. Boltasækirinn er kominn hálfa leiðina upp á Húsavíkurfjall í
þessum skrifuðu orðum, en þetta sleppur, enda vel nestaður drengurinn fyrir þessa langferð. Sigurhjörtur Snorrason flautaði síðar til leiksloka
og lokatölur því 1-1.
Myndir Halla Sig. frá leiknum er hægt að skoða hér
Athugasemdir