Völsungur gerđi jafntefli á Króknum.

Völsungar sóttu Tindastól heim á Sauđárkrók í 2. deildinni í kvöld og náđu einu stigi ţar. Reyndar mćtti frekar segja ađ Stólarni hafi náđ einu stigi ţví

Völsungur gerđi jafntefli á Króknum.
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 202 - Athugasemdir ()

Halldór Fannar skorađi í kvöld.
Halldór Fannar skorađi í kvöld.

Völsungar sóttu Tindastól heim á Sauðárkrók í 2. deildinni í kvöld og náðu einu stigi þar. Reyndar mætti frekar segja að Stólarni hafi náð einu stigi því þeir jöfnuðu leikinn með síðustu snertingunni í leiknum.

 

Annars segir http://www.fotbolti.net/ svona frá leiknum:

 

Tindastóll og Völsungur gerðu 2-2 jafntefli á Sauðárkróki í kvöld í fyrsta leiknum í annarri umferð í annarri deild karla.

Elfar Árni Aðalsteinsson kom Völsungi yfir um miðjan fyrri hálfleik en fleiri mörk voru ekki skoruð áður en leikmenn gengu til búningsherbergja.

Þegar tuttugu mínútur voru eftir skoraði Halldór Fannar Júlíusson með skoti sem fór í varnarmann og inn og allt stefndi í að Völsungur færi með sigur af hólmi.

Tindastólsmenn lögðu hins vegar ekki árar í bát og markvörðurinn Gísli Eyland Sveinsson minnkaði muninn eftir að brotið hafði verið á Róberti Jóhanni Haraldssyni, spilandi þjálfara liðsins.

Á 93.mínútu skoraði Dejan Djuric síðan jöfnunarmark Tindastóls með skalla en það var síðasta snerting leiksins.

Lokatölur 2-2 og hafa Tindastólsmenn fjögur stig

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ