22. apr
Völsungar tóku Magna í bakaríiđÍţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 459 - Athugasemdir ( )
Völsungar tóku Magnamenn frá Grenivík í bakaríið í Boganum í dag þegar liðin mættust í B-deild Lengjubikarsins. Vöslungar sigruðu 5-0 og tryggðu sér toppsætið í riðlinum en þetta var lokaumferðin í riðlakeppninni. Jón Hafsteinn Jóhannsson kom Völsungum á bragðið í fyrri hálfleik og var staðan 1-0 í leikhlé.
Magnamenn misstu svon fljótlega mann af velli með rautt spjald á bakinum og eftirleikurinn auðveldur hjá okkar mönnum. Hrannar Björn Steingrímsson skoraði tvö mörk og þeir Bjarki Baldvinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson eitt mark hvor.
Lesa má nánar um leikinn á heimasíðunni 123.is/volsungur
Hér má skoða lokastöðuna í 1. riðli B-deildar Lengjubikarsins.
Athugasemdir