31. jan
Vlsungar sigruu riilinn me fullt hs stigarttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 415 - Athugasemdir ( )
Völsungar léku síðasta leik sinn í A-riðli Soccerademótsins í knattspyrnu í gær. Þá léku þeir við lið KA 2 í Boganum og höfðu sigur, 4-2. Mörkin skoruðu Elfar Árni Aðalsteinsson, sem gerði tvö, og þeir Friðrik Mar Kristjánsson og Hrannar Björn Steingrímsson sitt markið hvor.
Völsungar unnu sinn riðil með fullt hús stiga og eru þar með komnir í úrslit Soccerademótsins þar sem þeir mæta sigurvegara B-riðils.
Athugasemdir