19. júl
Völsungar höfđu betur á FáskrúđsfirđiÍţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 253 - Athugasemdir ( )
Völsungar héldu áfram baráttunni í 3. deildinni sl. föstudagskvöld þegar þeir sóttu Leikni heim á Fáskrúðsfjörð. Strákarnir höfðu betur í leiknum og þrjú mikilvæg stig bættust við á stigatöflunni. Það var
Bjarki Baldvinsson sem skoraði sigurmarkið eftir að Stefán Björn Aðalsteinsson hafði skeiðað upp kantinn og gefið fyrir. Völsungar léku manni færri lengst af leiknum því Halldór Fannar Júlíusson fékk að líta rauða spjaldið eftir tæplega hálftímaleik.
Eftir níu umferðir eru Völsungar efstir í D-riðli 3. deildar með 23 stig og Einherjamenn koma næstir með 18 stig.
Athugasemdir