26. jan
Völsungar á úrtaksćfingumÍţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 349 - Athugasemdir ( )
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari sagði á æfingu með Völsungi í fyrra að
það væru greinilega einhver knattspyrnugen á sveimi á Húsavík og það virðist vera rétt því Völsungar eru
mikið á faraldsfæti þegar kemur að úrtaksæfingum hjá yngri landsliðum íslands.
Völsungur átti einn leikmann í U17 úrtaksæfingum sem fram fóru um nýliðna helgi. Arnþór Hermannsson var valinn í 36 manna hóp sem æfðu í Kórnum og Egilshöll undir stjórn Gunnars Guðmundssonar.
Um næstu helgi verða síðan æfingar hjá U16 ára landsliði karla í Boganum og hefur Freyr Sverrisson landsliðsþjálfari valið hóp til úrtaksæfinga. Leikmennirnir koma frá félögum á norðurlandi og á Völsungur sex leikmenn í þessum tuttugu og fimm manna hóp. Leikmenn Völsunga eru Benedikt Jóhannsson, Stefán Óli Valdimarsson, Hafþór Mar Aðalgeirsson, Halldór Geir Heiðarsson, Sigvaldi Þór Einarsson og Stefán Júlíus Aðalsteinsson.
Hópinn í heild sinni er hægt að sjá hér
Athugasemdir