Umfjöllun: Traffík á toppnum

Meistaraflokkur karla gerđi frábćra ferđ í kjúklingabćinn en ţeir sigruđu Aftureldingu, 1-2, á Varmárvelli og tylltu sér viđ hliđ KV á toppi deildarinnar

Umfjöllun: Traffík á toppnum
Íţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 580 - Athugasemdir ()

Frá Varmárvelli í dag
Frá Varmárvelli í dag

Meistaraflokkur karla gerði frábæra ferð í kjúklingabæinn en þeir sigruðu Aftureldingu, 1-2, á Varmárvelli og tylltu sér við hlið KV á toppi deildarinnar en liðin er jöfn að stigum eftir leiki helgarinnar. Völsungar lenntu undir í leiknum en komu til baka og mörk Völsungs skoruðu þeir Aðalsteinn Jóhann Friðriksson og Hafþór Mar Aðalgeirsson.

Byrjunarlið Völsungs: Dejan Pesic, Stefán Jón Sigurgeirsson, Pétur Ásbjörn Sæmundsson, Marko Blagojevic, Sigvaldi Þór Einarsson, Halldór Fannar Júlíusson, Arnþór Hermannsson, Hrannar Björn Steingrímsson (f), Hafþór Mar Aðalgeirsson, Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Milan Pesic.

Gul spjöld: Hafþór Mar Aðalgeirsson & Aðalsteinn Jóhann Friðriksson.

hringur

Leikurinn fór rólega af stað hjá okkar mönnum en blautur völlurinn bauð upp á tæklingar í 15 stiga hita í Mosfellsbæ. Eftir rúmar tuttugu mínútur féll Aðalsteinn Jóhann inn í teig heimamanna en það mátti heyra vel í stuðningsmönnum Völsungs í stúkunni sem að voru algjörlega vissir um að þetta væri víti og ekkert annað. Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson, dómari leiksins, lét þó flautuna bara hanga og ekkert dæmt.

Skömmu síðar náðu Völsungar upp fínu spili sín á milli sem endaði með því að Hafþór Mar renndi boltanum á Hrannar Björn fyrirliða sem að átti fína tilraun en skot hans vel varið af markverði Aftureldingar.

Heimamenn skoruðu svo fyrsta mark leiksins eftir 29 mínútna leik en skot utan af velli speglaðist af varnarmanni okkar og í netið. Fram að þessu hafði lítið gerst en eftir markið fóru okkar menn almennilega í gang.

Það lifnaði enn meira yfir þeim grænu og Milan Pesic var nálægt því að jafna leikinn en skalli hans söng í þverslánni. Stuttu síðar kom svo loks jöfnunarmarkið en þar var að verki Aðalsteinn Jóhann Friðriksson sem hamraði boltann upp í þaknetið eftir fínan undirbúning Milan Pesic. Á þessum tímapunkti sýndi leik klukkan 48 mínútur. Ekki urðu mörkin fleiri í fyrri hálfleik og staðan jöfn, 1-1, er liðin fóru inn í klefa að berja sig saman fyrir seinni hlutann.

alliskorar
                         Hér má sjá boltann í netinu er Alli Jói jafnaði leikinn

Síðari hálfleikur rúllaði af stað og stöðug barrátta á vellinum einkenndi upphafsmínúturnar. Hrannar Björn minnti á sig með góðu skoti en markvörður heimamanna á réttum stað og varði. Örfáum mínútum síðar spiluðu okkar menn upp allan völlinn sem endaði með sendingu frá Hafþóri Mar yfir á Milan Pesic sem var í góðu færi en skot hans varið í horn og þeir grænu grátlega nálægt því að taka forystuna.

Tíu mínútum síðar kom fyrirliðinn með eina sleggju en langskot hans rétt framhjá markinu og í kjölfarið átti Alli Jói skemmtilega tilraun vel fyrir utan teig þegar hann sá að markmaður heimamanna var framarlega í markinu og setti háan innanfótarbolta sem markmaður rétt náði að blaka yfir þverslána og á þessum tímapunkti var kominn spenningur í loftið líkt og að annað markið væri alveg að fara detta.

dorihbs
                          Hrannar Björn og Halldór Fannar í baráttunni

Það gerðist svo á 73.mínútu en þá skoraði Hafþór Mar Aðalgeirsson er boltinn barst til hans inn í teig eftir að Marko Blagojevic skallaði boltann frá miðju eftir útspark heimamanna en boltinn sveif upp völlinn og lenti í blautu grasinu fyrir framan markmanninn og skaust yfir hann þar sem Hafþór mætti og potaði yfir línuna, virkilega skrautlegt mark. Staðan, 1-2, og Völsungar með leikinn í höndum sér.

Fljótlega eftir markið fékk Milan Pesic sem var sprækur í leiknum tvo fína sénsa en hann náði ekki að gera sér mat úr því. Alli Jói fékk sömuleiðis tækifæri til þess að gera endanlega út um leikinn á 90.mínútu er hann slapp einn í gegn en markvörður Aftureldingar sá við honum. Eftir þetta ómaði lokaflautið um svæðið og virkilega mikilvæg og dýrmæt stig í höfn.

milan
                                          Milan Pesic var flottur í leiknum

Með sigrinum koma strákarnir sér vel fyrir á toppi deildarinnar ásamt KV en bæði liðin eru með 31 stig þegar að 15 umferðir eru búnar. Það er traffík á toppnum en næsta skref er að slíta Vesturbæinga frá okkur og komast heim, í fyrsta sætið.

Næsti leikur liðsins er á heimavelli, þriðjudaginn 14.ágúst, kl.19:00 og það þarf vart að hvetja fólk til þess að mæta á völlinn því það er nokkuð ljóst að á svona stundum þegar liðið okkar er í bullandi baráttu á toppnum þá á ekki að þurfa segja fólki að mæta á völlinn. Fyllum þessa brekku og búum til sigurstemningu í brekkunni líkt og drengirnir hafa skapað inn á vellinum.
ÁFRAM VÖLSUNGUR!

Maður leiksins: Hafþór Mar Aðalgeirsson
haffi

hardir
   Grjótharðir stuðningsmenn Völsungs létu vel í sér heyra á Varmárvelli


bsig
        Balli Sig mætti á völlinn með KR regnhlíf en með grænt hjarta

dragan
                                  Dragan Stojanovic, þjálfari Völsungs.

2

sissi

maggivsvolsar

Alli2

milan

baratta

deefense

fagn

fagn2

Tengdar greinar:
Hrannar Björn: Karakterinn í liðinu er gríðarlegur

Alli Jói: Okkur líður vel á þessum stað


Þökkum Ragga Óla kærlega fyrir myndirnar.


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ