Umfjllun: renna Hrannars Bjrns drekkti KFR

Vlsungar klifu 40 stiga mrinn Hvolsvelli gr er lii sigrai KFR 19.umfer 2.deildar. arna ttust vi toppli og botnli deildarinnar en

Umfjllun: renna Hrannars Bjrns drekkti KFR
rttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 683 - Athugasemdir ()

Hrannar skorai rennu
Hrannar skorai rennu

Völsungar klifu 40 stiga múrinn á Hvolsvelli í gær er liðið sigraði KFR í 19.umferð 2.deildar. Þarna áttust við topplið og botnlið deildarinnar en Völsungur kláraði dæmið sannfærandi, 1-4, þar sem Hrannar Björn Steingrímsson fyrirliði skoraði þrennu og Pétur Ásbjörn "Klingenberginn" Sæmundsson setti sitt fyrsta mark fyrir félagið við mikinn fögnuð Siggu Kling í brekkunni.

Byrjunarlið Völsungs: Dejan Pesic, Stefán Jón Sigurgeirsson, Gunnar Sigurður Jósteinsson, Marko Blagojevic, Sigvaldi Þór Einarsson (Bergur Jónmundsson '67), Halldór Fannar Júlíusson (Sigþór Hannesson '83), Pétur Ásbjörn Sæmundsson, Arnþór Hermannsson, Hrannar Björn Steingrímsson (f), Hafþór Mar Aðalgeirsson (Ásgeir Sigurgeirsson '53), Milan Pesic.

Fyrir leikinn var KFR fallið og höfðu heimamenn lítið um að keppa en sú staða leysir oft um ákveðna spennu hjá liðum svo ljóst var að leikurinn yrði ekki auðveldur, ekki frekar en einhver annar leikur í þessari deild. Völsungar ferðuðust suður daginn áður og gistu á Hellu svo þeir mættu vel hvíldir til leiks og klárir í slaginn eftir skemmtilegt ferðalag.

Það var hvasst á Hvolsvelli þegar leikurinn hófst en Völsungar settu strax tóninn á sjöundu mínútu leiksins þegar að Hrannar Björn Steingrímsson skoraði fyrsta mark leiksins með lausu en hnitmiðuðu skoti í fjærhornið fyrir utan teig eftir sendingu frá Hafþóri Mar. Markmaður heimamanna illa staðsettur og el capitano nýtti sér það, 0-1.

hbs1

Eftir markið fór allt á fullt hjá grænklæddum og fimm mínútum síðar var Hafþór Mar nálægt því að bæta við öðru markinu eftir fyrirgjöf frá Hrannari sem rataði beint á pönnuna á Haffa en skalli hans rétt yfir. Skömmu síðar var Haffi aftur á ferðinni en þá skallaði hann í slá, Milan Pesic tók frákastið og stangaði boltann í stöng. Þung sókn sem Völsungar voru klaufar að klára ekki með marki.

Á 18.mínútu datt svo loksins annað markið. Arnþór tók þá aukaspyrnu frá hægri, Pétur "Klingenberginn" Sæmundsson stökk manna hæst, skallaði boltann í varnarmann og þaðan rúllaði hann í fjærhornið. Pétur eignaði sér eðlilega markið og fagnaði fyrsta marki sínu fyrir félagið vel og innilega með því að hlaupa upp í brekku til móður sinnar sem öskraði liðið áfram ásamt stuðningsmannasveit sinni Team Klingenberg, 0-2.

kling

Eftir þetta datt leikur Völsungs aðeins niður og ákveðin værukærð kom yfir liðið. Heimamenn gengu á lagið og minnkuðu muninn eftir tæpan hálftíma með marki frá Mariusz Baranowski sem slapp einn í gegn og renndi boltanum í fjærhornið framhjá Milan Pesic, 1-2.

Tíu mínútum síðar var aftur komið að Hrannari Birni sem fór mikinn í þessum leik. Halldór Fannar vann boltann framarlega á miðjunni, Milan fær hann til sín og leggur á hann Hrannar sem hamraði tuðruna ofarlega í fjærhornið af rúmum 25 metrum. Stórglæsilegt mark og Völsungar með leikinn aftur í höndum sér, 1-3. Þannig var staðan í hálfleik og fólk gæddi sér á grilluðum pylsum að hætti heimamanna á meðan það beið spennt eftir seinni hlutanum.

hbs2

Völsungar héldu áfram að skapa sér dauðafæri í seinni hlutanum en gestirnir fengu fjöldafæri í þessum leik sem hæglega hefði getað endað með lokatölum í ætt við handboltaleik. Milan Pesic og Halldór Fannar sem var að spila sinn hundraðasta leik fyrir félagið fengu báðir mjög góð færi einir á móti markmanni en Bjarki í rammanum hjá KFR náði að henda sér fyrir boltann og bjarga heimamönnum trekk í trekk.

Á 65.mínútu leiksins fullkomnaði svo fyrirliðinn þrennuna. Ásgeir Sigurgeirsson sem hafði komið inn á sem varamaður snemma í seinni hálfleik átti þá frábært samspil við Hrannar þar sem þeir léku sér að vörn heimamanna og flott spil þeirra endaði með sendingu frá Ásgeiri innfyrir á Hrannar sem kláraði færið af mikilli yfirvegun, 1-4, og ljóst að Völsungar voru að klífa 40 stiga múrinn þennan daginn.

þrenna

Líkt og áður kom fram þá skapaði Völsungur sér fullt af færum sem væri hægt að skrifa langa ritgerð um en gestirnir sóttu stíft undir lokin og ætluðu sér fimmta markið. Það gekk þó ekki og Einar Ingi Jóhannsson slakur dómari leiksins flautaði af í kuldanum á Hvolsvelli. Lokatölur 1-4, KFR fallið niður í 3.deild og Völsungur á toppi deildarinnar með 40 stig, fjórum stigum á undan KF þegar að þrjár umferðir eru eftir.

Maður leiksins: Hrannar Björn Steingrímsson
MOTM

Þessi sigur var gríðarlega mikilvægur því þetta er erfiður völlur heim að sækja. Strákarnir kláruðu þetta sannfærandi en eflaust allir sammála um að mörkin hefðu mátt vera fleiri. Hrannar Björn var frábær í þessum leik, skoraði þrjú mörk og öskraði lið sitt áfram frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Hann kemur með mikinn talanda og stemningu inn í liðið sem mér finnst oft á tíðum af skornum skammti hjá öðrum leikmönnum liðsins. Sigurinn gerir okkur kleift að taka enn eitt skrefið í átt að markmiðum liðsins en nú eru þrír leikir eftir sem verður að klára. Pakkinn er þéttur á toppnum og það má ekki misstíga sig núna. Útlitið er gott og ef að menn mæta fullkomlega tilbúnir til þess að gefa allt sem þeir eiga í þessi síðustu verkefni sumarsins er ljóst að það verða fagnaðarfundir á Húsavík undir lok september mánaðar. ÁFRAM VÖLSUNGUR!!

kings

team klingenberg

feðgar

arnar

1

2

3

dori

milan

kling2

fagn

geiri

sissi

3mark

fagn2

stadan

Tengdar greinar:
Dragan Stojanovic: Þetta er ekki búið
Hrannar Björn: Fyrsta þrennan mín eftir að ég fékk hár á punginn


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr