Umfjöllun, myndbönd af mörkunum og myndir frá fyrsta leik vetrarinsÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 753 - Athugasemdir ( )
Völsungur mætti KF í Boganum fyrr í dag í fyrsta leik sínum þetta árið í Kjarnafæðisdeildinni. Völsungar skörtuðu hvítum búningum líkt og “heimaliðið” og þurftum við því að spila í grængulum vestum yfir. Eins og gengur og gerist á þessum árstíma spila aðallega þeir Völsungar sem búsettir eru norðan heiða og fengu því margir að sýna sig og sanna í þessum fyrsta leik undirbúningstímabilsins.
Nýtt andlit mátti finna í markinu en Grenvíkingurinn Hjörtur Geir Heimisson stóð á milli stangana og mun gera það í mótinu. Hann komst vel frá sínum fyrsta leik fyrir Völsung en hann hefur allan sinn meistaraflokksferil spilað með Magna. Í bakvarðarstöðunum voru Sindri Ingólfsson og Bergur Jónmundsson og miðvarðaparið skipuðu Gunnar Sigurður Jósteinsson og Sigvaldi Þór Einarsson.
Á miðri miðjunni voru Eyþór Traustason, Arnþór Hermannsson og Guðmundur Óli Steingrímsson sem spilaði í Völsungsgrænu(m sokkum) í fyrsta skipti í langan tíma. Hann mun gera það áfram vonandi sem lengst! Á köntunum voru Bjarki Freyr Lúðvíksson og Hrannar Björn Steingrímsson en uppi á topp var Ásgeir Sigurgeirsson.
Völsungar byrjuðu leikinn illa og létu lítið fyrir sér finna og áttu erfitt fram á við. Á 15.mínútu komust KF menn í
1-0 eftir glæsilegt skallamark en Eggert Kári Karlsson var þar að verki. Völsungar bættu sig þó eftir því sem leið á leikinn og
Hrannar Björn fékk vítaspyrnu á 20.mínútu eftir fyrirgjöf frá hægri kanti í ágætis sókn. Arnþór
Hermannsson steig á punktinn en brást bogalistin í þetta skiptið þar sem markvörður heimamanna varði vel.
Menn fóru að komast aðeins betur inn í leikinn og til að mynda átti Hrannar gott skot frá vítateigshorni sem var varið og Ásgeir
skallaði rétt framhjá. Rétt fyrir hálfleik átti Sindri Ingólfs svo fyrirgjöf inn í teig og Ásgeir kom á ferðinni og
skallaði fast í átt að marki en markvörðurinn varði í horn. Upp úr horninu sparkar varnarmaður boltanum upp í loft og svífur hann
í fallegum boga út í teig þar sem Ásgeir Sigurgeirs er fyrstur að boltanum og setur hann fallega í slá og inn! 1-1 í hálfleik.
Okkar menn spiluðu mun betur í seinni hálfleik og voru líklegri en í þeim fyrri. Þó var mikið stress á mönnum og menn mikið að drífa sig á síðasta þriðjungnum sem orsakaði það að sóknirnar runnu út í sandinn.
Á 60.mínútu komust Fjallabyggðarmenn í 2-1. Kristinn Rósbergsson slapp einn í gegn og skaut að marki en Hjörtur varði vel.
Því miður speglaðist boltinn til baka í Kristinn og þaðan í markið.
Okkar menn gáfust þó ekki upp og voru líklegri eftir þetta. Á 85.mínútu tókst svo loks að jafna en Bergur Jónmunds
tók þá innkast á Ásgeir sem lék á varnarmann og sendi laglega inn í teig, beint í hlaupið hjá Eyþóri Traustasyni
sem lék upp að marki og kláraði færi sitt af mikilli yfirvegun. Virkilega góð sókn og vel gert hjá Eyþóri sem þar með
skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark fyrir Völsung. Til hamingju Eyþór.
Leikurinn var svo flautaður af fljótlega og 2-2 jafntefli því niðurstaðan. Heilt yfir átti liðið ágætis leik. Byrjaði illa en
skánaði eftir því sem á leið. Menn uxu í stöður sínar og frambærilegasta breytingin þótti mér hjá
Eyþóri Trausta sem spilaði sig betur og betur inn í leikinn í hlutverki sínu aftarlega á miðjunni. Sigvaldi var öflugur í nýrri
stöðu í hjarta varnarinnar og hreinlega geislaði af sjálfsöryggi eftir sumarið. Hjörtur varði nokkrum sinnum vel í markinu og verður gaman
að fylgjast með honum í mótinu. Bergur var traustur í sínum aðgerðum og það er virkilega gaman að sjá Guðmund Óla í
Völsungstreyjunni á nýjan leik. Hann mun færa liðinu aukin gæði og reynslu úr 1.deildinni sem getur klárlega nýst okkur.
Semsagt; Döpur byrjun en ágætis bæting og jafntefli niðurstaðan. Fínasti leikur miðað við 6.janúar og fyrsta æfingarleik. Gaman verður að fylgjast með framhaldinu.
Hér má sjá myndasyrpu frá Sævari
Sigurjónssyni.
Hér fyrir neðan má sjá myndband með helstu atvikum leiksins.
Athugasemdir