Umfjöllun: Mćrusigur í steikjandi hita á Húsavíkurvelli

Völsungur mćtti Hamar í frábćru veđri síđastliđinn laugardag. Ţessa helgi voru Mćrudagar á Húsavík og brekkan ţví ţéttsetinn á međan leik stóđ. Menn

Umfjöllun: Mćrusigur í steikjandi hita á Húsavíkurvelli
Íţróttir - Ingvar Björn Guđlaugsson - Lestrar 621 - Athugasemdir ()

Mćruleikurinn 2012
Mćruleikurinn 2012

Völsungur mætti Hamar í frábæru veðri síðastliðinn laugardag. Þessa helgi voru Mærudagar á Húsavík og brekkan því þéttsetinn á meðan leik stóð. Menn gíruðu sig upp eins og svo oft áður þessa tilteknu Mæruhelgi og lönduðu þremur fallegum stigum en leikurinn endaði með 2-1 heimasigri Völsunga.

Byrjunarlið Völsungs: Dejan Pesic, Sveinbjörn Már Steingrímsson, Gunnar Sigurður Jósteinsson, Marko Blagojevic, Sigvaldi Þór Einarsson, Halldór Fannar Júlíusson, Arnþór Hermannsson, Hrannar Björn Steingrímsson (f), Hafþór Mar Aðalgeirsson (Bergur Jónmundsson '69), Ásgeir Sigurgeirsson (Aðalsteinn Jóhann Friðriksson '87), Milan Pesic.

Tveir leikmenn voru að spila sinn fyrsta leik fyrir Völsung í sumar. Sveinbjörn Már Steingrímsson þekkjum við öll, en hann er kominn heim frá Noregi og mun spila með liðinu út tímabilið. Milan Pesic spilaði svo sinn fyrsta leik fyrir Völsung en hann kom til landsins þriðjudaginn síðasta og er ætlað að fylla í skó Tine Zornik sem meiddist snemma í sumar.

Leikurinn fór fjörlega af stað en boltinn hentist vallarhelminga á milli og hvorugt lið í sjálfu sér með undirtökin. Halldór Fannar fékk fínt skotfæri frá vítateig eftir um fimm mínútna leik en skot hans endaði yfir markið. 

Milan Pesic kom svo Völsungum í 1-0 eftir 13 mínútur. Hár bolti barst frá vinstri og skoppaði í jörðinni við vítateiginn. Markvörður gestanna óð út í boltann en Milan varð fyrri til og pikkaði boltanum framhjá honum. Þeir skullu saman og hefði mátt dæma brot á markvörðinn en Milan náði að klára færi sitt áður en hann endanlega missti jafnvægið og féll til jarðar. 1-0 fyrir Völsunga og brekkan ærðist af fögnuði!

1-0

Stuttu eftir þetta fékk Hafþór Mar síðan fyrirgjöf frá Hrannari á fjærstöngina hægra megin, tók boltann vel niður en þrumaði yfir markið úr þröngu færi. 

Eftir um 23 mínútna leik jöfnuðu svo gestirnir. Tóku aukaspyrnu við ca miðlínu hægra megin og sendu boltann inn á fjær. Þar var hann skallaður fyrir markið og Aron Smárason mætti í knöttinn og kláraði af stuttu færi. Úr vallarskúrnum virkaði þetta alveg afskaplega einfalt, ódýrt og hreinlega lélegt í varnarvinnu heimamanna. Ei þýðir þó að gráta Björn bónda heldur safna liði.... 1-1 og var það hálfleiksstaðan eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik. Þó voru Völsungar ívið hættulegri en Hafþór skaut til að mynda framhjá úr frábæru færi. Varnarleikur okkar var einnig sterkur en þeirra sprækasti maður var Abdoulaye Ndiaye og sótti hann hratt upp vinstri kantinn ótt og títt. Sveinbjörn Már var þó vandanum vaxinn og hélt honum í skefjum og held ég að Abba hafi aðeins tvisvar sinnum tekist að leika á Sveinbjörn.

Seinni hálfleikinn byrjuðum við öruggari en gestirnir og vorum alltaf líklegri fannst manni. Það fór allavega ekkert um mann hræðsluhrollur þegar gestirnir nálguðust vítateig okkar. Hrannar og Ásgeir reyndu skotskónna snemma hálfleiks en þau skot voru bæði varin. Hrannar átti síðan fast skot með jörðinni frá vítateig en það endaði rétt framhjá markinu. Keimlíkt því þegar hann skoraði gegn HK um daginn, nema nú var ekkert mark.

Þó voru menn eflaust eingöngu að bíða eftir einhverju stórkostlegu til þess að stuða brekkuna með en það tókst Arnþóri Hermannssyni svo sannarlega að gera á 61.mínútu. Hann sneri baki í markið og tók erfiða sendingu Hrannars á kassann áður en hann sneri sér við, lét boltann skoppa áður en hann tók hann á lofti í fallegum boga yfir markvörðinn og í markhornið af um 25-30 metra færi. Hreint stórkostlegt mark hjá Arnþóri og gjörsamlega trylltist brekkan!

ah

Það var ekki mikið um fallegan fótbolta sem eftir var. Völsungar reyndu oftar en ekki að sækja hratt á gestina, jafnvel of hratt og tapaðist boltinn því á lélegum sendingum. Gestirnir aftur á móti fundu engar leiðir í gegnum vel skipulagða vörn Völsunga. Völsungar fengu gott færi undir lok leiks er Aðalsteinn Jóhann, þá nýkominn inn á sem varamaður, fékk boltann í vítateignum en skot hans hafnaði í varnarmanni og stoppaði þar. 

Leiktíminn rann svo út og unnu Völsungar því 2-1 sigur og komu sér því fallega fyrir í 2.sætinu með 25 stig.

blago
Marko Blagojevic var kosinn Heimabakarísmaður leiksins
og hlaut því súkkulaðiskóinn í þetta skiptið. Marko batt vörnina frábærlega saman og lokaði stórkostlega á nokkrar skottilraunir Hamarsmanna í fyrri hálfleik. Varnarlínan öll var annars sterk í dag og Halldór átti fínan leik fyrir framan vörnina. Hrannar Björn barðist og barðist og átti hvað bestan leik af fremri mönnum.

Mikilvæg 3 stig í baráttunni og það er ekkert sætara en að vinna Mærudagaleikinn! Það er óskandi að einn daginn getum við búið við það að hafa þennan fjölda að staðaldri á leik hjá okkur. Varnarlega séð vorum við sterkir og okkur tókst ágætlega að skapa okkur færi þótt nýtingin hefði mátt vera betri. 

Næsti leikur liðsins er svo gegn Gróttu á Seltjarnarnesi nú á miðvikudaginn. Eins og staðan er nú hefst leikurinn kl.20.00 en það gæti átt eftir að breytast. Við hvetjum alla Völsunga til þess að mæta á þennan leik og styðja okkar stráka í toppbaráttunni sem þeir standa í. ÁFRAM VÖLSUNGUR!

sissi

haffi

coach



Tengdar greinar:
Marko Blagojevic: Hér á Húsavík líður mér eins og heima
Milan Pesic: Mjög mikilvægt að ná að skora strax

Bergmann bræður í viðtali eftir mærusigurinn


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ