Umfjöllun: Lífsmarkslausir á DalvíkurvelliÍţróttir - Ingvar Björn Guđlaugsson - Lestrar 648 - Athugasemdir ( )
Völsungar heimsóttu Dalvíkinga í kvöld er þeir mættu liði Dalvík/Reynis í logni og fínu fótboltaveðri. Andleysi
einkenndi leik Völsunga lengst af og voru heimamenn yfir í flestum einvígum leiksins sem endaði með verðskulduðum 2-0 sigri heimamanna.
Byrjunarlið Völsungs:
Dejan Pesic, Sveinbjörn Már Steingrímsson, Gunnar Sigurður Jósteinsson, Marko Blagojevic, Sigvaldi Þór Einarsson, Pétur Ásbjörn
Sæmundsson, Halldór Fannar Júlíusson, Arnþór Hermannsson (Ásgeir Sigurgeirsson ’46, Bergur Jónmundsson ’73), Aðalsteinn
Jóhann Friðriksson, Hrannar Björn Steingrímsson, Milan Pesic.
Leikurinn byrjaði af miklum krafti og bæði lið reyndu að spila á háu tempói framan af á meðan barátta var um miðjuyfirráð.
Hrannar Björn átti fínt skot af um 25 metra færi eftir um fimm mínútna leik en það var örugglega varið. Völsungar sváfu svo
á verðinum eftir tíu mínútna leik en þá fengu heimamenn aukaspyrnu á hægri kantinum. Upp úr henni kom fyrirgjöf inn í teig
á Bessa Víðisson sem skallaði boltann í markið, einn og óvaldaður í teignum. 1-0 fyrir Dalvík/Reyni og brekka framundan fyrir
Völsunga.
D/R voru líklegri framan af en flest þeirra skot voru víðsfjarri markinu. Eftir um hálftíma leik kom besta sókn Völsunga en Hrannar og Halldór
spiluðu sig þá vel upp vinstri kantinn. Hrannar sótti svo inn að marki og lagði boltann út á Arnþór sem stakk honum inn á Milan.
Markvörður D/R mætti vel út í Milan og varði en Milan hefði engu að síður getað farið betur með færið. Upp úr
þessu fengu heimamenn skyndisókn þar sem framherji þeirra slapp í gegn en Dejan varði vel frá honum í horn. Eftir hornið bjargaði Sigvaldi
svo á línu.
Dalvíkingar skoruðu svo mark eftir aukaspyrnu en voru dæmdir brotlegir í teignum í aðdragandanum. Markaskorari þeirra missti þó af flautinu og
fagnaði eins og brjálæðingur fyrir framan stúkuna alla og orgaði úr sér lungun. Frekar vandræðalegt þegar hann áttaði sig
á stöðunni en getur eflaust hlegið að þessu seinna meir fyrst lokastaðan féll með honum.
Síðustu mínútur fyrri hálfleiks lifnaði aðeins yfir Völsungum en Pétur átti frábæra fyrirgjöf inn í teig sem Milan
tók illa niður og lenti í samstuði við markvörðinn um boltann. Boltinn hrökk til hliðar þar sem Arnþór mætti í hann og
þrumaði honum í hliðarnetið úr þröngu færi. Aðeins mínútu síðar átti Milan í kapphlaupi við varnarmann
um boltann sem skoppaði í átt að marki heimamanna. Milan náði að reka tánna í boltann og koma honum framhjá markverðinum en
því miður einnig rétt framhjá fjærstönginni.
Staðan því 1-0 fyrir Dalvík/Reyni í hálfleik sem var ekki góður fyrir Völsunga. Munurinn þó lítill og smá líf
í mönnum undir lok fyrri hálfleiksins og því trúðu Völsungar í brekkunni að menn gætu og myndu snúa þessu við
í þeim síðari. D/R komust svo í 2-0 á 53.mínútu. Enn og aftur aukaspyrna utan af kanti, skalli á mark sem Dejan varði út í
teig og leikmenn D/R mættu í frákastið. Verðskulduð 2-0 forysta.
Ásgeir Sigurgeirs, sem hafði komið inn á í hálfleik, skallaði boltann svo framhjá markinu eftir aukaspyrnu Hrannars. Í sjálfsögðu
lítið annað en hálffæri en það fyrsta sem við fengum í seinni hálfleik. Skömmu síðar, á 71.mínútu, var
Ásgeir svo negldur niður af miðjumanni heimamanna og þar með lauk hans þátttöku í leiknum. Hann var nokkrum sinnum herfaður niður eftir
að hann kom inn á og hefði verið ánægjulegt að sjá dómara leiksins grípa þar inn í áður en illa færi en
því miður fór ekki svo. Bergur kom inn á í stað Ásgeirs.
Þegar tæpt korter var eftir virtust Völsungar ætla að byrja að reyna en Hrannar Björn átti þá glæsilega stungu inn fyrir á Alla
Jóa en vinstri fótar skot hans var ekki nógu gott og varði markvörðurinn auðveldlega. Örstuttu síðar, á 80.mínútu hvarf svo
restin af von Völsunga í brekkunni. Sveinbjörn Már óð þá upp kantinn og var brotið á honum en hann hélt hlaupi sínu
áfram og hagnaðarreglan við lýði. Eitthvað fékk það á Sveinbjörn sem henti sér í ljóta tæklingu í
kjölfarið á varnarmann sem hafði rennt sér í boltann og lá því í jörðinni. Glórulaus tækling og réttilegt
rautt spjald á Sveinbjörn sem þó snerti aldrei boltann í hagnaðinum og fengu Dalvíkingar aukaspyrnuna í kjölfarið. Völsungar
sýndu þó fína takta strax í næstu sókn og Milan vann boltann í teignum áður en hann hlóð í skot sem var
glæsilega varið í horn.
Þegar venjulegur leiktími var síðan að renna sitt skeið fékk Alli Jói aukaspyrnu á hættulegum stað sem Marko tók en skot hans var
ekki nógu gott og átti markvörðurinn ekki í vandræðum með það. Áður en yfir lauk hafði leikmaður D/R þó
fengið rautt spjald. Hann fékk sitt seinna gula spjald fyrir hendi á miðjum vellinum sem virtist ansi saklaust í fljótu bragði. Slakur dómari leiksins
var þó eflaust að reyna að sýna einhverja málamyndun því hann hefði átt að senda sama leikmann útaf með rautt spjald fyrir
áðurnefnda tæklingu á Ásgeir. Leikurinn var svo flautaður af og endaði hann með verðskulduðum 2-0 sigri D/R.
Það fyrsta sem manni dettur í hug eftir leikinn er andleysi Völsunga sem var bersýnilegt út í gegnum leikinn. Pirringur út í samherjann,
dómarann og síðar meir andstæðinginn sem við höfum lítið sýnt áður í sumar sprakk út í kvöld og virtust
fáir aðrir en Pétur vera tilbúnir í að drífa liðið áfram á hvetjandi hátt. Hausinn á okkur hvarf út úr
leiknum snemma og menn náðu engan veginn að einbeita sér að fótboltanum. Á endanum sprakk þetta hugarfar með glórulausu rauðu spjaldi
Sveinbjörns. Ekki veit ég hvað gerði það að verkum að menn virtust ekki tilbúnir í verkefni kvöldsins. Ég trúi ekki að menn
hafi verið búnir að setja sig á háan hest í kjölfar toppsætisins því það gefur ekkert að vera efstur eftir 16 leiki.
Það hinsvegar skiptir máli að vera það eftir 22 leiki. Enn höfum við ekkert afrekað og unnið og því verða menn að mæta
klárir með hausinn rétt skrúfaðan á í toppslaginn gegn KV um næstu helgi.
Þrátt fyrir allt þá megum við alls ekki læsa okkur heima inni í herbergi með hausinn undir kodda og dvelja lengi við þetta tap. Þetta er
búið að vera frábær sprettur núna og ágætt að menn gleymi því ekki að það eru níu umferðir liðnar
án þess að tapa leik sem verður að teljast mjög gott. ÞAÐ ER NÓG EFTIR og við erum í 1-2 sæti jafnir KV að stigum. Næstu
dagar fara í það að rífa sig upp og einbeita sér að næsta leik sem verður alvöru toppbaráttu slagur en strákarnir vita vel að
ef þeir ætla sér að gera þetta saman og stilla hausana og hjartað rétt þá eru KV aldrei að fara með neitt nema ostaslaufu úr
leikmannakaffinu frá Húsavík um næstu helgi. Völsungur er enn taplaust á heimavelli og þannig verður það til loka tímabilsins.
Að lokum er vert að minnast á mætingu Völsunga í stúkuna í kvöld en það var frábært að sjá ykkur öll sem
að lögðu leið ykkar á völlinn. Þetta er mjög jákvætt og mikilvægt en það er ljóst að strákarnir standa í
skuld við ykkur eftir kvöldið í kvöld og trúi ég ekki öðru en að þeir borgi það um næstu helgi og þakki fyrir sig
með sigri. Áfram höldum við og upp með hausinn. ÁFRAM VÖLSUNGUR!!
Tengdar greinar:
Dragan: Verðum að læra af þessu
Athugasemdir