Umfjöllun: Kóngarnir komnir heimÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 891 - Athugasemdir ( )
Völsungur sigraði KV í toppslag deildarinnar, 2-0, með mörkum frá Hafþóri Mar Aðalgeirssyni. Jafnt var í hálfleik en Völsungar
kláruðu dæmið örugglega í restina eftir að hafa átt seinni hálfleikinn skuldlaust. Eftir leikinn situr Völsungur á toppnum með 37
stig þremur stigum á undan KV þegar að fjórar umferðir eru eftir.
Byrjunarlið Völsungs: Dejan Pesic, Stefán Jón Sigurgeirsson, Gunnar Sigurður Jósteinsson, Marko Blagojevic, Sigvaldi Þór Einarsson,
Halldór Fannar Júlíusson, Pétur Ásbjörn Sæmundsson, Arnþór Hermannsson (Ásgeir Sigurgeirsson '76), Hrannar Björn
Steingrímsson (f) (Bergur Jónmundsson '90), Hafþór Mar Aðalgeirsson, Milan Pesic.
Það ringdi duglega við og við á Húsavíkurvelli í dag og voru áhorfendur kuldalegir í brekkunni en létu það þó
ekki á sig fá og öskruðu sitt lið áfram. Fyrri hálfleikurinn bauð ekki upp á mörg færi en bæði lið náðu að
skapa sér svona hálf færi og vantaði þessa dýrmætu úrslita sendingu á báðum endum.
Fyrri hlutinn einkendist af mikilli baráttu og sumir leikmenn áttu í erfiðleikum með að standa í lappirnar á votum vellinum. Staðan var markalaus,
0-0, er liðin gengu í átt að Sundlaug Húsavíkur í hálfleik og fólk í brekkunni var farið að auglýsa eftir
mörkum.
Dragan Stojanovic þjálfari Völsungs virtist hafa náð að stilla lið sitt enn betur saman með hálfleiksræðu sinni því heimamenn
mættu út á völl eins og eldfjall sem aðeins átti eftir að gjósa. Hafþór Mar var sprækur í leiknum og komst í
dauðafæri eftir 55 mínútur er hann slapp einn í gegn en skot hans framhjá nærstönginni og gestirnir stálheppnir að lenda ekki undir. Klaufi
Haffi að klára ekki færið en hann átti eftir að bæta upp fyrir það og gott betur.
Tæpum fimm mínútum síðar tók Hrannar Björn fyrirliði sig til og hamraði góðri slummu á mark gestanna sem var á leið upp
í markhornið fjær en skot hans frábærlega varið af Atla Jónassyni markmanni KV.
Heimamenn sóttu stíft að KV en það var ljóst að markið lá í loftinu. Á 83.mínútu leiksins tóku Völsungar svo
forystuna með marki frá Hafþóri Mar eftir sendingu frá Milan Pesic á fjærstöng þar sem Hafþór mætti og hamraði boltann
í netið. Refur Haffi þarna og vel útfærð sókn hjá heimamönnum. Brekkan vaknaði svo sannarlega við þetta og framundan spennandi
lokamínútur.
Heimamenn héldu áfram að sækja óhræddir eftir markið og var Ásgeir Sigurgeirsson sem hafði komið inn á sem varamaður
nálægt því að bæta við marki á 92 mínútu leiksins með góðu skoti fyrir utan teig en Atli Jónasson vel vakandi og
sá við honum með klassa vörslu í horn. Hrannar Björn stillti sér upp við horn fánann og flengdi einum af sínum eitruðu hornspyrnum inn
á teig þar sem títtnefndur Hafþór Mar Aðalgeirsson stökk manna hæst og barði pönnunni í boltann sem söng í netinu.
Staðan 2-0 og heimamenn búnir að gulltryggja sigurinn.
Geir Eggertsson góður dómari leiksins flautaði svo í kjölfarið og Völsungar á toppi deildarinnar með 37 stig, þremur stigum á undan
KV.
Heimabakarísmaður leiksins: Hafþór Mar Aðalgeirsson
Andri Bergmann veitti Hafþóri Mar verðlaunin í
leikslok.
Haffi var flottur í þessum leik og skapandi fram á við. Hann kórónaði leik sinn með tveimur mjög svo mikilvægum mörkum sem gætu
reynst virkilega dýrmæt í lok sumars. Hafþór er alltaf að bæta sinn leik meir og meir en hann er illviðráðanlegur þegar hann er
í stuði drengurinn.
Halldór Fannar og Klingenberginn voru sterkir á miðjunni og áttu báðir góðan leik. Hrannar öskraði liðið áfram og smitar
út frá sér yfirvegun og gæði sem er áberandi. Marko og Gunni eða "hjónin" eins og þeir eru kallaðir spiluðu mjög vel og hleyptu
Vesturbæingum varla nálægt markinu þar sem Dejan Pesic stóð fyrir aftan líkt og kóngur, kóngurinn sem hann er.
Þessi sigur er virkilega hrikalega ógeðslega mikilvægur og má sjá glytta í dollunna þarna hinumegin við hæðina. Menn verða
þó að gera sér grein fyrir því að það er ekkert í hendi og nóg eftir. Allir sem einn þurfa að halda haus, standa í
lappirnar og klára þetta saman.
Til hamingju kóngar, þið eruð komnir aftur á toppinn. Þið eruð komnir heim.
Tengdar greinar:
Dragan: Kláruðum þetta sannfærandi
Hafþór Mar: Við erum
bestir
Hrannar: Ég ætla
ekki að vera kokký
Athugasemdir