Umfjllun: Kngarnir toppnum

Vlsungar tku mti Reyni Sandgeri Hsavkurvelli kvld vi kjrastur til knattspyrnuikunar. Vlsungar hafa veri gri siglingu undanfari

Umfjllun: Kngarnir toppnum
rttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 701 - Athugasemdir ()

Milan fagnar marki snu
Milan fagnar marki snu

Völsungar tóku á móti Reyni Sandgerði á Húsavíkurvelli í kvöld við kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunar. Völsungar hafa verið á góðri siglingu undanfarið og voru taplausir í síðustu átta leikjum á undan þessum en Sandgerðingar mættu til Húsavíkur með fjögur töp í röð á bakinu eftir að hafa verið á toppi deildarinnar eftir fyrri umferðina.

Leikurinn byrjaði fjörlega, bæði lið sóttu og létu finna vel fyrir sér og dómarinn leyfði leiknum að ganga töluvert en fyrsta aukaspyrna leiksins leit dagsins ljós á 7.mínútu, þá í kjörfæri fyrir gestina á vítateigslínu Völsunga. Slök spyrnan var hins vegar auðveldlega varin af Dejan Pesic.

Fyrsta almennilega færi Völsunga var eftir um það bil kortersleik þegar Aðalsteinn Jóhann Friðriksson átti fyrirgjöf frá vinstri sem Pétur Ásbjörn Sæmundsson tók á kassann í teignum og klippti framhjá markinu.

alli

Enn skiptust liðin á að sækja og Grétar Hjartarson, framherji Reynismanna, átti skot úr frábæru færi í markteignum en Dejan Pesic var vandanum vaxinn og varði boltann auðveldlega en Grétar hefur átt betri skot á ferlinum.

Fyrsta markið kom svo á 27.mínútu og var það heimamanna. Hrannar Björn Steingrímsson tók þá hornspyrnu og datt boltinn fyrir fætur Marko Blagojevic í teignum. Hann hamraði boltann í átt að fjærstönginni þar sem að Milan Pesic kastaði sér fram og skallaði boltann í hornið. 1-0 fyrir Völsunga og mikill fögnuður í brekkunni.

milan
                                 Hér má sjá Milan Pesic skora fyrsta markið

Völsungar ætluðu að láta kné fylgja kviði og Halldór Fannar Júlíusson og Pétur Ásbjörn þræddu Halldór í gegnum vörnina aðeins mínútu síðar. Halldór missti þó jafnvægið í skotinu og höfðu varnarmaður  og markvörður gestanna þrengt að Halldóri sem átti máttlaust skot. Það var hreinsað út í teig á Aðalsteinn Jóhann sem skaut framhjá.

alli2

Dejan Pesic varði tvær skottilraunir Reynismanna áður en að Milan Pesic og Hafþór Mar Aðalgeirsson skiptust á að leggja á hinn í skotfæri í teignum en þau færi nýttust ekki. Staðan því 1-0 þegar Vilhelm Adolfsson flautaði til loka fyrri hálfleiks.

Seinni hálfleikurinn bauð ekki upp á eins mörg afgerandi færi en bæði lið héldu tempóinu uppi og sótt var áfram á báða bóga. Fyrsta alvöru marktækifærið skilaði þó marki en Aðalsteinn Jóhann henti sér í tæklingu inn í teig Reynismanna og vann boltann af miklu harðfylgi, lagði hann fyrir sig og sneri hann fastan í vinkilinn fjær. Glæsilegt mark og Völsungar komnir í 2-0 forystu eftir 58.mínútna leik.

alli3

Áfram hélt leikurinn og þótt hraðinn héldist voru færin ekki til þess að tala um. Leikurinn fjaraði út og unnu Völsungar góðan 2-0 sigur og tylltu sér í kjölfarið í efsta sæti deildarinnar með þriggja stiga forskot. Reynismenn þurfa aftur á móti að fara ítarlega í sín mál en fimm tapleikir í röð eftir frábæra fyrri umferð er einkar athyglisvert.

Maður leiksins: Halldór Fannar Júlíusson
bobandori
          Boban Legend Jovic afhendi Halldóri Fannari súkkulaðiskóinn

Halldór Fannar Júlíusson var kjörinn Heimabakarís maður leiksins og hlaut súkkulaðiskóinn og gjafabréf í Heimabakarí að launum. Halldór var vel að skónum kominn en hann stóð sig gríðarvel á miðjunni í dag líkt og í undanförnum leikjum. Mikil vinnsla í honum og hann var að skila honum einfalt og örugglega frá sér. Í eitt skiptið í fyrri hálfleik hljóp hann uppi hraðan miðjumann Reynismanna og skýldi boltanum frábærlega í hendur Dejan Pesic eftir að hafa komið sér fram fyrir manninn sem var að detta í dauðafæri.

Pétur Ásbjörn og Hrannar Björn voru með honum á miðjunni í þetta skiptið og Pétur að spila sinn fyrsta heimaleik fyrir félagið, til hamingju með það. Báðir voru þeir líka duglegir og átti miðjan stórgóðan leik vinnslulega séð.

Alli Jói er dæmi um leikmann sem er að uppskera ríkulega þessa dagana. Eftir að hafa setið á bekknum fyrstu 14 deildarleikina hefur hann beðið færis og í undanförnum tveimur leikjum þar sem hann hefur byrjað hefur hann svo sannarlega gripið gæsina. Mikil vinnsla og skynsemi ásamt tveimur mörkum og maður biður varla um meira. Margir mega taka sér þetta viðhorf til fyrirmyndar.

Milan og Haffi með mikla baráttu og mikinn dugnað frammi og eru að ná að tengja ágætlega saman þótt vanti aðeins herslumuninn upp á. Haffi meira inn í leiknum en oft áður, þá sérstaklega framan af og Milan er farinn að þekkja mun betur inn á liðið og leikstíl þess.

Marko og Gunni Siggi stóðu af sér allar árásir gestanna og voru geysilega flottir í vörninni. Einnig áttu bakverðirnir Stefán og Sigvaldi fínan leik að ógleymdum Dejan Pesic í markinu. Allt sem hann gerir lætur markvarðarstöðuna líta hlægilega auðveldlega út. Það er bara frábært að sjá.

Í stuttu máli sagt. Völsungur er á toppi 2.deildar með 34 stig þegar sex umferðir eru eftir. Nú þurfa menn að halda haus og halda áfram að leggja sig fram í átt að markmiðum sínum. ÁFRAM VÖLSUNGUR!



upphitun

dorii

allisvekktur

leikurinn

blago

haffi

olli

1saeti

Tengdar greinar:
Halldór Fannar: Get ekki beðið eftir því að mæta Bessa frænda

Klingenberginn: Líður eins og að ég hafi verið í þessu liði í tíu ár

Þökkum Hjálmari Boga fyrir myndirnar.


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr