Umfjllun: Fyrirliinn stal sigrinum lokinrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 634 - Athugasemdir ( )
Kvennalið Völsungs sigraði Tindastól, 2-1, er næst síðasta umferð B-riðils fór fram í kvöld en liðin mættust á
Húsavíkurvelli í fallegu sumarveðri. Mörk Völsungs skoruðu Helga Björk Heiðarsdóttir og Harpa Ásgeirsdóttir.
Byrjunarlið Völsungs: Anna Jónína Valgeirsdóttir, Berglind Ósk Kristjánsdóttir, Jóney Ósk
Sigurjónsdóttir, Jana Björg Róbertsdóttir, Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir (Hulda Ósk Jónsdóttir '73), Anna Halldóra
Ágústsdóttir, Helga Björk Heiðarsdóttir, Ruth Ragnarsdóttir, Harpa Ásgeirsdóttir (f), Kristín Lára Björnsdóttir
(Heiðdís Hafþórsdóttir '54), Ragna Baldvinsdóttir (Elma Rún Þráinsdóttir '63).
Leikurinn hófst í smá vindi en það lægði vel fljótlega og frábært fótboltaveður sem að liðin fengu nánast allan
leikinn í sumarsól á Húsavíkurvelli í kvöld. Heimastúlkur byrjuðu leikinn af krafti fyrstu tíu mínúturnar og var
útlit fyrir að þær myndu klára þennan leik vel og örugglega.
Fyrsta mark leiksins skoruðu hinsvegar gestirnir en allt í einu upp úr engu lá boltinn í netinu. Miðjumaður Tindastóls sparkar þá lausum
bolta frá miðju hátt í loftið sem virtist á leið yfir markið en hann sveif yfir Önnu Jónínu í markinu, datt undir slánna
og í netið, 0-1, eftir ellefu mínútur og það virtist enginn á vellinum fatta að mark hefði verið skorað fyrr en að þjálfari
gestaliðsins öskraði inn á völlinn "Stelpur! viljiði fagna!!."
Eftir um hálftíma leik áttu Völsungar tvær fínar tilraunar en Ruth Ragnarsdóttir hlóð í gott skot sem endaði í
stönginni og Harpa Ásgeirsdóttir átti fínt skot sem fór rétt framhjá markinu.
Á 38.mínútu leiksins skoruðu heimastúlkur mark sem dæmt var af. Helga Björk Heiðarsdóttir var þar að verki en stuðningsmenn
í brekkunni voru harðir á því að þarna hafi verið um rangan dóm að ræða. Lítið annað gerðist fram að
leikhléi og gestirnir leiddu, 0-1, í hálfleik.
Seinni hálfleikur var gjörsamlega eign Völsunga. Þær sóttu frá því að hann fór af stað og hlangað til að þessu var
lokið. Á 54.mínútu var bjargað á línu eftir skot frá Ruth og allir biðu eftir því að jöfnunarmarkið myndi detta.
Það kom svo loks á 70.mínútu leiksins en þá skoppaði boltinn inn fyrir beint fyrir framan lappinar á Helgu Björk Heiðarsdóttir
sem hamraði hann í netið af miklu öryggi og staðan jöfn, 1-1, vel klárað hjá Helgu.
Helga Björk Heiðarsdóttir skorar
hér jöfnunarmarkið
Völsungsstúlkur héldu áfram að sækja og sækja en þær ætluðu sér að loka dæminu. Þegar að tíu
mínútur voru eftir bjargaði markvörður gestanna frábærlega er hún varði skalla frá Berglindi eftir horn og pressan þyngdist enn meira
að marki Tindastóls.
Sigurmarkið datt svo þegar að ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma. Það var fyrirliðinn Harpa Ásgeirsdóttir sem tryggði
öll stigin með marki af stuttu færi eftir mikinn hamagang í teignum og stelpurnar fögnuðu líkt og um áramótapartý væri að
ræða. Virkilega sætt og stuttu síðar flautaði dómari leiksins og öll stigin Völsunga.
Hér má sjá Hörpu fyrirliða tryggja öll stigin undir lok leiksins
Stelpurnar hafa nú unnið þrjá leiki í röð og virðist sem ákveðin hugarfarsbreyting hafi átt sér stað innan hópsins sem
smalar inn punktunum. Liðið situr í fjórða sæti deildarinnar með 19 stig þegar að ein umferð er eftir og spila þær sinn lokaleik í
sumar um næstu helgi er sterkt lið HK/Víkings kemur í heimsókn á Húsavíkurvöll.
NIVEA-stúlka leiksins: Jóney Ósk Sigurjónsdóttir
Hafrún Olgeirsdóttir afhendi Jóney Ósk verðlaunin í leikslok
Tengdar greinar:
Jói Páls: Við áttum leikinn frá A til Ö
Helga Björk: Hefðum átt að skora fleiri mörk
Myndir: Hjálmar Bogi
Athugasemdir