Umfjllun: Frbr seinni hlfleikur tryggi langran sigurrttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 546 - Athugasemdir ( )
Völsungsstelpur heimsóttu suðurnesjameyjar í kvöld þar sem boðið var upp á vindblástur og rigningu að hætti Keflvíkinga.
Stelpurnar lönduðu afar sætum og kærkomnum, 1-3, sigri en mörk Völsungs skoruðu þær Dagbjört Ingvarsdóttir, Sigrún Lilja
Sigurgeirsdóttir og Ruth Ragnarsdóttir.
Byrjunarlið Völsungs: Anna Jónína Valgeirsdóttir, Jana Björg Róberstdóttir, Ásrún Ósk Einarsdóttir,
Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir, Helga Björk Heiðarsdóttir (Jóney Ósk Sigurjónsdóttir '70), Ruth Ragnarsdóttir, Harpa
Ásgeirsdóttir (f), Dagbjört Ingvarsdóttir, Kristín Lára Björnsdóttir (Anna Halldóra Ágústsdóttir '65), Ragna
Baldvinsdóttir (Berglind Ósk Kristjánsdóttir '65), Hulda Ósk Jónsdóttir
Það blés duglega á móti Völsungum þegar að leikurinn fór af stað og vindurinn og rigningin spilaði stórt hlutverk allan fyrri
hálfleikinn. Það gekk illa að ná sóknarleiknum í gang og börðust þær við veðrið allt þar til leikhléið
birtist.
Heimastúlkur tóku hinsvegar forystuna rétt áður en flautað var til leikhlés en þá var brotið á Jönu Björg
Róbertsdóttir en dómari leiksins viss í sinni sök og lét leikinn halda áfram, sóknarmaður Keflvíkinga gefur fyrir en Anna
Jónína í marki Völsunga missti boltann klaufalega inn og staðan í hálfleik, 1-0, heimastúlkum í vil.
Seinni hálfleikur var öllu betri hjá Völsungum og með vindinn í bakið réðust þær á heimastúlkur. Jói gerði
tvöfalda skiptingu þegar að um klukkutími var liðinn af leiknum en þær Anna Halldóra og Berglind Ósk komu inn og lífguðu verulega upp
á leik Völsungs.
Á 70.mínútu leiksins kom svo loks jöfnunarmarkið. Þá tók Dabjört Ingvarsdóttir sig til og hamraði boltann á markið af 30
metra færi og jafnaði leikinn en boltinn endaði í gegnum klofið á markmanni Keflvíkinga og í netið. Eftir markið kom Jóney Ósk inn
með ferskar lappir og stelpurnar búnar að galopna leikinn.
Skömmu síðar tóku þær svo forystuna en Hulda Ósk átti þá skot á markið sem að Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir
fylgdi vel á eftir og Völsungar með leikinn í höndum sér. Staðan, 1-2, Völsungum í vil þegar að rúmar tíu
mínútur voru eftir en á þessum tímapunkti var stemningin og krafturinn allsráðandi Völsungsmegin.
Ruth Ragnarsdóttir kláraði svo dæmið og lokaði þessu með frábæru marki í fjærhornið fyrir utan teig og innsiglaði
langþráðan sigur en stelpurnar voru búnar að bíða alltof lengi eftir þessari stund. Lokatölur í Keflavík, 1-3, og einn besti
hálfleikur stúlknanna í sumar skilaði mikilvægum punktum í safnið.
Stelpurnar fara því með bullandi meðbyr með sér til Ísafjarðar á sunnudaginn til þess að spila gegn BÍ/Bolungarvík.
Völsungsstúlkur eiga harma að hefna frá fyrri leik liðanna og munu eflaust mæta tvíefldar til leiks í kjölfar þessa upplífgandi
sigurs.
Tengdar greinar:
Jói Páls: Það gekk allt upp í seinni hálfleik
Athugasemdir