Umfjöllun: Dramatískur sigur ţar sem vitinn vakir allar nćturÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 640 - Athugasemdir ( )
Völsungur sigraði Gróttu, 2-3, á nesinu í 14.umferð 2.deildar í gær en það var mikil spenna og dramatík undir lok leiksins. Manni
færri kláruðu Völsungar leikinn og lönduðu gríðarlega mikilvægum stigum sem halda liðinu í öðru sæti deildarinnar. Mörk
Völsungs skoruðu þeir Gunnar Sigurður Jósteinsson, Halldór Fannar Júlíusson og Milan Pesic.
Byrjunarlið Völsungs: Dejan Pesic, Sveinbjörn Már Steingrímsson, Gunnar Sigurður Jósteinsson, Marko Blagojevic, Sigvaldi Þór
Einarsson, Halldór Fannar Júlíusson, Pétur Ásbjörn Sæmundsson, Arnþór Hermannsson (Ásgeir Sigurgeirsson '46), Hrannar
Björn Steingrímsson (f), Hafþór Mar Aðalgeirsson (Aðalsteinn Jóhann Friðriksson '85), Milan Pesic.
Gul spjöld: Milan Pesic, Sveinbjörn Már Steingrímsson & Gunnar Jósteinsson
Rautt spjald: Sveinbjörn Már Steingrímsson
Leikurinn fór rólega af stað og Völsungar létu lítið fyrir sér fara í upphafi leiks. Heimamenn tóku forystuna með skallamarki eftir
horn þegar að sautján mínútur voru liðnar af leiknum en fram að því hafði lítið gerst á báðum endum
vallarins.
Okkar menn lifnuðu örlítið við eftir markið en illa gekk að ná upp spili hjá liðinu og þar með náðu Völsungar ekki að
skapa sér neitt fram á við. Varnarleikurinn hélt vel en það vantaði að fá sóknarleikinn í gang. Lítið gerðist fram
að hálfleiknum og staðan, 1-0, þegar að liðin gengu til búningsherbergja.
Það vakti athygli mína að harðir stuðningsmenn Gróttu voru í skiltagerðum í miðjum leik en í fyrri hálfleik mátti
sjá tvo félaga með sitthvort skiltið þar sem þeir sendu Sigurði Helgasyni þjálfara heimamanna skýr skilaboð. HELGASON OUT skiltið
hafði sést á síðasta heimaleik Gróttumanna en það reyndist þeim ekki nóg því áður en síðari
hálfleikur hófst mættu þeir með enn eitt skiltið sem ég er nokkuð viss um að þeir hafi græjað út í bíl við
Gróttuvöll og verður að teljast grjóthart að vera með málningardolluna og klárt skilti bara í bílnum við völlinn. Þeir
tóku eflaust bara fyrri hálfleikinn í það að ákveða næstu skilaboð en á þriðja skiltinu stóð: "Grótta
á betra skilið".
Það var líkt og allt annað lið hafi mætt út á völl þegar að seinni hálfleikur fór af stað. Völsungar voru
vaknaðir og ætluðu sér augljóslega eitthvað meira frá leiknum en langloku í leikmannakaffinu eftir leik. Á 49.mínútu jafna loks
þeir grænklæddu en þá átti Hrannar Björn fyrirliði frábæra aukaspyrnu frá vinstri væng sem datt beint á kollinn
á Gunnari Sigurði "Klettinum" sem að fleytti boltanum í fjærhornið og Gunni Siggi búinn að jafna leikinn, glæsilegt mark.
Eftir um klukkutíma leik spila Völsungar fallega á milli sín upp hægra megin sem endar með sendingu fyrir þar sem Ásgeir Sigurgeirs var mættur
og er við það að skalla boltann inn en brotið á honum í loftinu og ekkert dæmt. Þarna létu stuðningsmenn Völsungs vel í
sér heyra enda algjört pungleysi hjá Halldóri Breiðfjörð, dómara leiksins, að flauta ekki þarna þar sem þetta var augljóst
brot.
Í kjölfarið tóku svo heimamenn forystuna á nýjan leik eða fimm mínútum síðar er þeir sleppa í gegn nánast upp
úr engu, tveir á móti Dejan í markinu sem endar með því að framherji Gróttumanna rúllar boltanum í autt markið. Staðan
2-1 eftir 65 mínútur.
Völsungar voru ekki á því að taka þátt í slíkum ófögnuði, brunuðu fram í sókn og uppskáru hornspyrnu.
Upp úr horninu frá Hrannari Birni berst boltinn út fyrir teig þar sem enginn annar en Halldór Fannar Júlíusson var mættur, hlóð
í eina sleggju, hamraði á markið og boltinn söng í fjærhorninu. Frábært mark og þeir grænu búnir að jafna leikinn á
ný, 2-2. Mikið fjör á nesinu og tvö mörk á tveimur mínútum.
Sex mínútum síðar datt svo þriðja markið sem reyndist sigurmark Völsungs. Enn og aftur Hrannar Björn með hornspyrnu, Ásgeir Sigurgeirs
kemur boltanum á markið sem er á leið inn en refurinn Milan Pesic potar boltanum í netið á marklínunni og Völsungar með leikinn í
sínum höndum, 2-3, og ljóst að framundan voru spennandi lokamínútur.
Sú varð raunin og ekki vantaði dramatíkina. Okkar menn fengu tvö dauða-dauða-dauðafæri til þess að klára leikinn, 2-4 leikmenn einir
á móti markmanni en á klaufalegan hátt náðum við ekki að nýta það og þar með leikurinn galopinn fram að
lokaflautinu.
Í æsingi og spennu á 93.mínútu leiksins voru Völsungar komnir með alltof marga leikmenn fram í sókn sem gerði það að verkum
að heimamenn náðu skyndisókn og framherji Gróttu slapp einn í gegn. Sveinbjörn Már Steingrímsson bauð þá upp á
tæklingu ársins er hann hljóp hann uppi og tók leikmanninn niður á vítateigslínunni. Dómari leiksins þurfti ekki að labba upp
að Sveinbirni og veifa rauða spjaldinu heldur gerði hann það svona einhvern veginn á eftir honum þar sem Sveinbjörn hljóp sjálfur án
orða beint útaf. Hárrétt ákvörðun hjá Sveinbirni að taka manninn niður og stór ástæða fyrir því að
við fórum heim með öll stigin.
Dómarinn var ekki viss hvort að hann ætti að dæma vítaspyrnu eða aukaspyrnu en eftir að hafa ráðlagt sig við aðstoðardómarann
komust þeir að réttum dómi og aukaspyrna dæmd. Dejan Pesic var vandanum vaxinn í markinu og varði aukaspyrnuna meistaralega. Í kjölfarið kom
flautið og Völsungar lönduðu mjög svo mikilvægum stigum í toppbarráttunni en liðið situr nú í öðru sæti deildarinnar
með 28 stig aðeins tveimur stigum á eftir KV sem vermir toppsætið. Glæsilegur sigur og flottur karakter hjá Völsungsliðinu sem hefur nú ekki
tapað leik í síðustu sjö leikjum.
Milan Pesic er að koma fínt inn í þetta með tvö mörk í tveimur leikjum en hans spilamennska hefur bara verið upp á við. Pétur
Ásbjörn eða "Klingenberginn" eins og við köllum hann spilaði sinn fyrsta leik í gær en hann hefur þurft að sitja undir ósanngjarnri og
barnslegri gagnrýni frá bæjarbúum frá því að hann kom til liðsins. Þessi strákur átti flottan leik í gær, var
að éta þessa kalla á miðjunni, sterkur og loksins fórum við að vinna skallabolta á miðsvæðinu sem vantað hefur í allt sumar.
Hann komst vel frá sínum fyrsta leik og vonandi að hann haldi áfram þessu striki. Velkominn Pétur og til hamingju með fyrsta leikinn.
Hrannar Björn var líflegur og fyrirliðinn átti þátt í öllum mörkum liðsins, fyrsta markið eftir góða aukaspyrnu frá
honum og hin tvö upp úr hornspyrnu. Gaman að sjá Hrannar vera nálgast sitt besta form en hann er enn að ná sér að fullu eftir erfið meiðsli
og verður bara sterkari með hverjum leik. Halldór Fannar spilaði sinn besta leik í sumar en hann var allt í öllu á miðjunni og virkilega gaman að
sjá gamla Dóra eins og við þekkjum hann. Halldór kórónaði flottan leik sinn svo með fallegu marki en það er svona sem maður vill
sjá strákinn. Ásgeir Sigurgeirs kom inn í liðið í hálfleik og hafði mikil áhrif á sóknarleikinn. Heimamenn réðu
engan veginn við hann og hraði hans og kraftur var frábær, þessi drengur er magnaður. Sveinbjörn tók ákvörðun leiksins með þessari
tæklingu undir lokin og þetta rauða spjald verður að teljast eitt það fallegasta sem menn hafa séð. Þroskuð hugsun og hárrétt
ákvörðun hjá honum sem sennilega skilaði sigrinum, vel gert.
Næsti leikur er útileikur í Kjúklingabænum en strákarnir heimsækja þá Aftureldingu á Varmárvöll þann
11.ágúst og hefst leikurinn kl.16:00. Það var flott mæting á völlinn í gær og gaman að sjá alla Völsungana sem lögðu
leið sína á nesið en það voru samt nokkur laus sæti á vellinum og við skulum fylla þau í næstu umferð. Komið og takið
þátt í þessu með okkur því það er virkilega gaman að vera Völsungur í dag.
Maður leiksins: Halldór Fannar Júlíusson
Liðsmynd eftir matinn í Borganesi
Tengdar greinar:
Hrannar Björn: Hann bjargaði í rauninni bara sigrinum
Halldór Fannar: Þeir verja hann ekki þarna
Athugasemdir