Strkarnir me strsigur Seyisfiri

Vlsungur vann sinn annan deildarleik kvld egar eir lgu Huginn a velli me fimm mrkum gegn einu. Leikurinn fr fram Seyisfiri og komust

Strkarnir me strsigur Seyisfiri
rttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 334 - Athugasemdir ()

Elfar rni skorai tv mrk  kvld.
Elfar rni skorai tv mrk kvld.

Völsungur vann sinn annan deildarleik í kvöld þegar þeir lögðu Huginn að velli á með fimm mörkum gegn einu. Leikurinn fór fram á Seyðisfirði  og komust Völsungar í 2-0  eftir 20 mínútna leik. Mörkin skoruðu Elfar Árni Aðalsteinsson og Aron Bjarki Jósepsson og þar við sat í fyrri hálfleik.

 

Í þeim síðari fengu heimamenn vítaspyrnu sem þeir skoruðu úr og staðan orðin 1-2. Elfar Árni skoraði sitt annað mark og þriðja mark Völsunga þega langt var liðið á leikinn. Þegar stutt var til leiksloka skoraði Rafnar Orri Gunnarsson fjórða mark gestanna en hann  hafði komið inn á sem varamaður. Það var svo Gunnar Sigurður Jósteinsson sem skoraði síðasta mark Völsunga og úrslitin 1-5 eins og áður segir.

 

Völsungur er með sex stig eftir fyrstu tvo leikina og markatala þeirra 12-2 en bæði mörkin sem liðið hefur fengið á sig komu úr vítaspyrnum.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr