20. júl
Stóđu sig vel á Strandamótinu.Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 207 - Athugasemdir ( )
Í gær fóru tvö lið frá Völsungi á Strandamótið sem haldið er ár hvert á Árskógsströnd. Þar keppa drengir í 7. flokki og voru liðin að þessu sinni af eyjafjarðarsvæðinu auk Völsunga. Skemmst er frá því að segja að Völsungar stóðu sig vel. A-liðið vann þrjá af fimm leikjum en C-liðið alla sína fimm. Meðfylgjandi myndir tók Vilhjálmur Sigmundsson en fleiri myndir frá mótinu er hægt að skoða á heimasíðu hans.
Kampakátir Völsungar á ströndinni.
Þá var Már Höskuldsson með myndavélina á lofti á Strandamótinu og því ekki ólíklegt að myndir þaðan birtist hér.
Athugasemdir