Stelpurnar úr leik í bikarnum eftir stórtap gegn Fylki

Hiđ unga liđ Völsungskvenna lék gegn Pepsideildarliđi Fylkis í VÍSA-bikarnum í gćr og lutu í gras. Gestirnir höfđu töglin og haldirnar á vellinum og ţegar

Stelpurnar úr leik í bikarnum eftir stórtap gegn Fylki
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 365 - Athugasemdir ()

Ásrún Ósk var mađur leiksins. Ljósm. BGB
Ásrún Ósk var mađur leiksins. Ljósm. BGB

Hið unga lið Völsungskvenna lék gegn Pepsideildarliði Fylkis í VÍSA-bikarnum í gær og lutu í gras. Gestirnir höfðu töglin og haldirnar á vellinum og þegar yfir lauk höfðu þeir skorað tíu mörk en heimastúlkur aðeins eitt.

Það gerði Indíana Þórsteinsdóttir úr víti sem Völsungar fengu eftir að brotið var á Sigrúnu Lilju Sigurgeirsdóttur innan vítateigs.

 

Ásrún Ósk Einarsdóttir var valin maður leiksins hjá heimamönnum og fékk að launum gjafapakkningu frá NIVEA á Íslandi sem stendur að valinu ásamt 640.is. Ásrún er á 15 ári og spilar einnig með 3. flokki Völsungs.

Ásrún sækir að leikmanni Fylkis.

Hér er mark í uppsiglingu hjá Fylkisstúlkunum snemma leiks.

Inda skoraði eina mark Völsunga úr þessari vítaspyrnu.

Jóney Ósk gaf ekkert eftir í leiknum eins og sjá má á myndinni.

 

Björn Grétar Baldursson tók myndina af Unni Mjöll og Ásrúnu Ósk.

Aðrar myndir eru teknar af ljósmyndara 640.is

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ