04. jún
Stelpurnar lágu á heimavelliÍţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 656 - Athugasemdir ( )
Völsungsstelpurnar mættur Selfyssingum í blíðskaparveðri á Húsavíkurvelli í dag. Leikurinn var heldur tíðindalítill og lauk með sigri gestanna sem skoruðu eitt mark en heimamenn ekkert.
Staðan var 0-0 í hálfleik en fljótlega í síðari hálfleik kom eina mark leiksins. Völsungar náðu reyndar að skora eitt mark en það var dæmt af vegna brots á leikmanni Selfoss. Þar við sat og er Völsungur nú með þrjú stig eftir þrjá leiki í Íslandsmótinu.
Elva Marý Baldursdóttir var kjörinn maður leiksins.
Markmaður gestanna er ekki með öllu ókunnur hér á Húsavík. Fyrrum markmaður Völsungs, Dagný Pálsdóttir.
Og hér fylgist karl faðir hennar með stelpunni, vallarstjórinn Palli Rikka.
Athugasemdir