25. nóv
Stefán Jón varđ 17 í risasvigiÍţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 389 - Athugasemdir ( )
Stefán Jón Sigurgeirsson varð í 17. sæti í risasvigi á FIS-móti í Hemsedal í Noregi í gær. Var 1,3 sekúndum á eftir Espen Theodorsen frá Noregi sem kom fyrstur í mark. Stefán Jón var efstur íslensku keppendanna en Árni Þorvaldsson hafnaði í 32. sæti og Sigurgeir Halldórsson varð í 62. sæti. Hundrað skíðamenn náðu að ljúka keppni en alls heltust 28 skíðamenn úr lestinni.
Athugasemdir