Sjötti sigur strákanna í röđ

Andri Valur Ívarsson fagnađi ţrítugsafmćlinu sínu á laugardaginn međ ţví ađ skora mark strax á ţriđju mínútu í leik Völsungs og Reynis í Sandgerđi.

Sjötti sigur strákanna í röđ
Íţróttir - Hafţór Hreiđarsson - Lestrar 401 - Athugasemdir ()

Andri Valur skorar gegn KS/Leiftri fyrr í sumar.
Andri Valur skorar gegn KS/Leiftri fyrr í sumar.

Andri Valur Ívarsson fagnaði þrítugsafmælinu sínu á laugardaginn með því að skora mark strax á þriðju mínútu í leik Völsungs og Reynis í Sandgerði. Heimamenn jöfnuðu leikinn undir lok fyrri hálfleiks en fyrirliði Völsunga, Aron Bjarki Jósepsson skoraði sigurmark þeirra grænu skömmu fyrir leikslok. Þar með unnu Völsungar sinn sjötta sigur í röð en ljóst er að þeir komast ekki upp um deild í haust. Þeir sitja í þriðja sæti þegar tvær umferðir eru eftir en lið Víkings í Ólafsvík og BÍ/Bolungarvík eru búin að tryggja sér sæti í 1. deild að ári.

 

Hér má lesa umfjöllun Völsungssíðu Ingvars Björns og Rafnars Orra um leikinn í Sandgerði.

 


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Björn-Rafnar Orri- Bjarki Breiđfjörđ