20. ma
Sjmannadeildin mun sj um heirun sjmannaAlmennt - Hafr Hreiarsson - Lestrar 550 - Athugasemdir ( )
Slysavarnadeild kvenna á Húsavík fór þess nýlega á leit við Sjómannadeild Framsýnar að deildin sjái um heiðrun sjómanna á sjómannadag í framtíðinni. Það er að sjá um að finna aðila til að heiðra sem og heiðrunina sjálfa.
Á heimasíðu Framsýnar segir frá því að stjórnarmenn Sjómannadeildarinnar hafi tekið vel tekið í ósk slysavarnarkvenanna og ákveðið að sjá um þessi mál. Það mun því koma í hlut Sjómannadeildarinnar að heiðra sjómenn á sjómannadaginn sem er sunnudaginn 6. júní nk.
Athugasemdir