02. ma
Sasta sning Leiin a titlinum anna kvld kl.20 Samkomuhsinurttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 197 - Athugasemdir ( )
Þá er komið að því að sýna síðustu sýninguna á heimildarmyndinni Leiðin að titlinum sem Græni Herinn gerði
eftir ævintýralega sigurför meistaraflokks Völsungs í knattspyrnu sumarið 2012
Myndin hefur verið sýnd áður bæði hér í samkomuhúsinu en hún var frumsýnd á 86 ára afmæli Völsungs
þann 12.apríl sem og hún var einnig sýnd í Bíó Paradís. Viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð og myndin
fengið mikla athygli.
Nú er síðasti séns til þess að sjá myndina og verður hún sýnd í hinsta sinn föstudaginn 3.maí kl.20:00 í
Samkomuhúsi okkar Húsvíkinga.
Miðapantanir fara fram hér: volsungur@gmail.com
Hlökkum til að sjá ykkur!
Athugasemdir