Serbneskur markmaur til Vlsungs

Vlsungar fengu mikinn lisstyrk dag er Serbneskur markvrur samdi vi flagi.

Serbneskur markmaur til Vlsungs
rttir - Hafr Hreiarsson - Lestrar 780 - Athugasemdir ()

Dejan Pesic.
Dejan Pesic.

Völsungar fengu mikinn liðsstyrk í dag er Serbneskur markvörður samdi við félagið. Sá heitir Dejan Pesic og er 35 ára markvörður. Dejan er fæddur 16.desember árið 1976 í Vlasotince í suðaustur-Serbíu og hefur komið víða við á ferli sínum. Feril sinn hóf hann hjá Serbneska liðinu FK Radnicki og spilaði þar 100 leiki á árunum 1992-1997. Þaðan fór hann til Red Star Belgrade og spilaði 110 leiki frá 1997-2002. Eftir tveggja ára stopp hjá FK Radnicki spilaði hann í þrjú ár í Rúmeníu áður en hann hélt til Íran þar sem hann spilaði í efstu deild.

Dragan Stojanovic, þjálfari Völsungs, er sáttur við nýjasta liðsmann sinn en hann þekkir til Pesic og vildi ólmur fá hann. Pesic er nú á mála hjá Serbnesku liði og kemur til Völsunga í apríl þegar sá samningur rennur út. Unnið er nú hörðum höndum að því að klára alla formlega pappírsvinnu sem fylgir slíkum skiptum.

Pesic er ætlað að koma að markmannsþjálfun hjá félaginu og hefur úr góðum reynslubanka að taka þegar að því kemur. Okkar upplýsingar sýna fram á að hann á að baki yfir 300 skráða kappleiki í atvinnumennsku og það er vonandi að hann muni reynast liðinu góður fengur.

Við bjóðum Dejan Pesic kærlega velkominn til Völsungs.


Athugasemdir

  • Herna

Ingvar Bjrn-Rafnar Orri- Bjarki Breifjr