Sá gamli grćni: Baldur Ingimar AđalsteinssonÍţróttir - Rafnar Orri Gunnarsson - Lestrar 692 - Athugasemdir ( )
Baldur Ingimar Aðalsteinsson er Sá gamli græni þessa vikuna. Baldur er öllum Völsungum minnugur en hann ólst upp í grænu treyjunni sem og hóf sinn feril í meistaraflokki hjá Völsungi. Baldur á að baki landsleiki með U21 & A-landsliðinu.
Eftir að hafa spilað í tvö ár í meistaraflokki Völsungs ákvað hann að söðla um og spilaði með liðum á borð
við ÍA, Val, Ürdingen og Víking R. Hér er Balli Kúta, gjörið svo vel!
Hvaða ár spilaðir þú fyrir Völsung ?
Ég er borinn og barnfæddur Völsungur, spilaði í meistaraflokk á árunum 1996-1998. Fyrsti leikur minn í meistaraflokki var heimaleikur á
móti Fram í 2. deildinni árið 1996.
Eftirminnilegasti leikur fyrir félagið ?
Árið 1990 mættum við Fylki í riðlakeppninni á Tommamótinu í Vestmannaeyjum, Fylkir var með ógnarsterkt lið sem flestir
óttuðust. Við Völsungar vorum einnig einstaklega vel mannaðir og úr varð einn rosalegasti leikur sem ég hef spilað. Leikurinn var tekinn upp af
Stöð 2 og hittumst við félagarnir reglulega og horfum á hann. Leiknum lauk með óverðskulduðu 2-2 jafntefli. Verð enn pirraður yfir þessu
jafntefli.
Bestu samherjar hjá Völsungi ?
Þeir voru margir en ég verð að taka bekkjarbræður mína úr 1980 árgangnum út. Menn eins og Ómar Þorgeirsson (einn
hæfileikaríkasti leikmaður í sögu félagsins), Magnús Halldórsson (besta vítaskytta sem félagið hefur átt, fyrir utan
Jónas Hallgríms auðvitað), Andri Valur (einstakur keppnismaður) og Ellert Stefánsson (það fór aldrei maður og bolti framhjá
Lertaranum).
Skemmtileg saga frá þessum tíma ?
Vetur einn þegar ég var í fjórða eða þriðja flokki fékk þjálfari okkar á þeim tíma þá snilldar
hugmynd að senda okkur strákana upp á Húsavíkurfjall í stað þess að hlaupa okkar hefðbundna hring. Þjálfarinn var
leikmaður í meistaraflokki sem hafði komið til liðs við Völsung að sunnan. Við vorum nú ýmsu vanir þannig að við lögðum af
stað upp melinn. Fyrir ofan stallalyftuna var stefnan sett þráðbeint upp á topp. Fljótlega hætti okkur flestum að lítast á blikuna enda var
veðrið að versna og sífellt varð erfiðara að ná tryggri fótfestu. Þegar það voru svona u.þ.b. 30 metrar eftir vorum við
flestir nánast komnir í sjálfheldu og héldum dauðataki í íshelluna sem umlauk toppinn. Ég gleymi því seint að sjá
félaga einn af öðrum hverfa mér sjónum þegar þeir fikruðu sig upp á toppinn. Ég var einn af þeim síðustu sem
náði alla leið. Sjónin sem beið manns er upp var komið var einstök, einn okkar hafði náð taki á mastri og sá næsti hélt
í lappirnar á honum og svo koll af kolli. Heilt knattspyrnulið Völsungs barðist þarna um eins og veifa á fána í stormviðri.
Við vorum aldrei aftur sendir upp á fjallið.
Hvað veistu um félagið í dag og starfsemi þess ?
Ég tel mig vera vel inn í starfsemi félagsins. Á skyldmenni í mörgu flokkum Völsungs þannig að maður reynir að fylgjast vel með
því góða starfi sem á sér stað í yngri flokkum félagsins. Umfjöllunin í kringum meistaraflokka Völsungs er
náttúrlega kominn á þann stall að mikill sómi er að og er til eftirbreytni fyrir önnur lið. Græni herinn er „different
class“ í mínum huga.
Hvaða skoðun hefur þú á gervigrasvellinum sem var vígður á dögunum ?
Mér finnst það alveg frábært. Þetta verður algjör bylting á aðstöðu félagsins og ætti að skila sér í
betri leikmönnum fyrir félagið og setja frekari stoðir undir Völsung. Hlakka mikið til að sjá og prufa völlinn þegar ég kem heim um helgina
í göngur.
Hvernig sérðu framtíð félagsins fyrir þér ?
Framtíð Völsungs er nú sem fyrr björt enda er þetta einstakt félag með gott bakland á besta stað landsins.
Lokaorð til Völsunga um heim allan ?
Stuðningur okkar er einstaklega mikilvægur nú á lokasprettinum. Látum okkur ekki vanta á völlinn og hvetjum okkar lið. Þeir sem eiga ekki
heimangengt eða eru órafjarri facebook-stuðningurinn skiptir einnig máli. Áfram Völsungur, sigrum þessa deild!!!
Eldri greinar:
Sá gamli græni:
Jónas Hallgrímsson (1.tbl)
Sá gamli græni: Sigmundur Hreiðarsson (2.tbl)
Sá gamli græni: Ásgeir Baldursson (3.tbl)
Sá gamli græni: Birkir Vagn Ómarsson (4.tbl)
Sá gamli græni: Bjarni Pétursson (5.tbl)
Sá gamli græni: Sigþór Júlíusson (6.tbl)
Sá gamli græni: Hjörtur Júlíus Hjartarson
(7.tbl)
Sá gamli græni: Hermann Aðalgeirsson (8.tbl)
Athugasemdir